Tvö mörk Börsunga á síðustu mínútunum - með 11 stiga forskot á Real Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. september 2012 19:30 Xavi fagnar hér marki sínu í kvöld. Mynd/AFP
Það tók Barcelona-menn 86 mínútur að finna leiðina framhjá Tono, markverði Granada í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Xavi skoraði markið á 87. mínútu og Granada-liðið skoraði síðan sjálfsmark í uppbótartíma. Barcalona vann því leikinn 2-0 og er með fullt hús á toppnum eftir fyrstu fimm umferðirnar. Barcelona er með 15 stig, fimm stigum meira en Málaga sem á leik inni á morgun. Börsungar hafa einnig 11 stigum meira en Real Madrid sem spilar á móti Rayo Vallecano á morgun. Xavi kom inn á sem varamaður fyrir Thiago Alcántara á 53. mínútu og Barcelona var búið að vera í stórsókn allan seinni hálfleikinn þegar boltinn féll fyrir miðjumanninn snjalla á 87. mínútu. Xavi tók við boltanum og lét vaða frá vítateigslínunni og boltinn fór í slánna og inn. Stórglæsilegt mark. Lionel Messi bjó síðan til seinna markið í uppbótartíma en varnarmaður Granada skoraði þá sjálfsmark eftir fasta fyrirgjöf Argentínumannsins. Barcelona-menn höfðu fengið full af færum en Tono var í miklu stuði í marki Granada og margir voru örugglega farnir að halda það að hann yrði ekki sigraður þegar kom að þessum meistaratöktum hjá Xavi.
Spænski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram Sjá meira