Matur

Helgarmaturinn - Kjúklingaréttur sem kitlar bragðlaukana

Berglind Guðmundsdóttir
Berglind Guðmundsdóttir

Berglind Guðmundsdóttir heldur úti fallegri matarsíðu sem ber heitið www. gulurraudurgraennogsalt.com. „ Ég legg mikla áherslu á að maturinn sé næringarríkur, líti vel út og sé bragðgóður og það fer ekkert inn á síðuna nema að það sé alveg dásamlegt!"

Kjúklingaréttur sem kitlar bragðlaukana

2 eggaldin, skorin í tvennt

3 rauðar paprikur, kjarnahreinsaðar og skornar í tvennt

Olía

600 gr. kjúklingalundir

Chilikrydd

1 laukur, smátt skorinn

3 hvítlauksgeirar, pressaðir

1 dós (400 gr.) pastasósa

1 dós (70 gr.) tómatpúrra

1 kúla mozzarella, skorin í þunnar sneiðar

1 búnt af ferskri basilíku, söxuð

Brauðmylsna úr tveimur vel ristuðum brauðum

Pasta að eigin vali, soðið þar til næstum al dente



1. Penslið eggaldin og paprikurnar með olíu og leggið á ofnplötu með bökunarpappír þannig að hýðið snúi upp. Grillið í ofni í um 30 mínútur eða þar til húðin á paprikunum verður svört. Kælið. Takið hýðið af paprikunum og skafið kjötið úr eggaldinunum. Látið paprikurnar og kjötið úr egg­aldinunum saman í skál.

2. Kryddið kjúklinginn með chili­kryddi og steikið á pönnu þar til hann er eldaður í gegn og gylltur. Takið til hliðar.

3. Léttsteikið því næst lauk og hvítlauk saman. Bætið grilluðu paprikunum og eggaldinkjötinu saman við og hrærið í um 1 mínútu. Bætið pastasósu og tómatpúrru út í og hrærið að suðu. Takið af hellunni, setjið basilíku út í og kryddið með salti og pipar.

4. Takið eldfast mót og setjið í það rúmlega botnfylli af soðnu pasta.Hellið helmingnum af sósunni yfir pastað og raðið því næst kjúklingnum yfir það og hellið svo restinni af sósunni yfir. Setjið mozzarella yfir allt saman og stráið brauðmylsnu yfir.

5. Látið í ofn í um 15 mínútur eða þar til osturinn er gullinn.



www.gulurraudurgraennogsalt.com.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.