Matur

Helgarmaturinn - Föstudagsmatur Freyju Sigurðardóttur

Kjúklingur er í miklu uppáhaldi hjá Freyju.
Kjúklingur er í miklu uppáhaldi hjá Freyju.

„Föstudagsmaturinn hjá okkur fjölskyldunni er oft kjúklingur og sætar kartöflur en kjúklingur er í miklu uppáhaldi hjá okkur. Ég borða mikið af kjúklingi þegar ég er að búa mig undir fitnessmót. En þá fæ ég ekkert krydd eða sósur með,“ segir Freyja Sigurðardóttir þjálfari.

Kjúklingur, sætar kartöflur og sumarsalat (þó það sé komið haust þá er allt í lagi að halda sumarsalatinu inni).

Fyrir 5



Kjúklingur:


6 kjúklingabringur steiktar á rafmagnspönnunni frá Salad­master.

Ég krydda bringurnar með kjúklingakryddinu frá Potta­göldrum og á algjörum sparidögum vef ég bringurnar með beikoni. Það finnst strákunum mínum algjört æði.

Sætar kartöflur:

3-4 sætar kartöflur

½ rauðlaukur

2 cm ferskur engifer

1 dl matreiðslurjómi

½ piparostur

AÐFERÐ

Þú skerð kartöflur í teninga og setur í eldfast mót, ofan á það fer niðurskorinn rauðlaukur og mjög smátt skorið engifer.

Svo seturðu kartöflur ofan á þetta aftur, engifer og rauðlauk, koll af kolli (eins og þú sért að gera lasanja).

Í lokin seturðu 1 dl af matreiðslurjóma og skerð svo piparostinn smátt og setur yfir kartöflurnar.

Inn í ofn í 30-40 mínútur við um 200°C.

Sumarsalat

1 poki spínat

½ poki klettasalat (rucola)

1 rauð paprika

2 tómatar

10 cm agúrka, smátt skorin

15 jarðarber

tvær lúkur af bláberjum

svo finnst okkur gott að hafa smá fetaost með.

Allt skorið vel niður í skál.

Með þessu drekkum við vatn með lime eða sódavatn.

Verði ykkur að góðu og góða helgi.

Sumarsalat Freyju.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.