Þórdís Þorleifsdóttir eigandi og hönnuður Mystuff.is, sem framleiðir og hannar dásamleg kerti sem slegið hafa í gegn, gefur uppskrift að kjúklingarétti fyrir fjóra.
„Ég rakst á þessa dásamlegu kjúklingauppskrift á síðunni Sillumatur.blogspot.com og hún sló rækilega í gegn á heimilinu. Kókoskjúklingur algjört sælgæti!" segir Þórdís.
Kjúklingaréttur fyrir 4
1 heill kjúklingur
3 msk. kókosmjöl
3 msk. saxaðar möndlur
1 msk. fiskisósa
1/2 dl ólífuolía
3 msk. sítrónusafi
Handfylli ferskt kóríander, saxað
2 msk. gott fljótandi hunang
1 tsk. túrmerik
2 hvítlauksrif, kramin eða rifin
salt og pipar
Marineringin blönduð saman og hún smurð á kjúklinginn. Gott að láta marinerast í klukkustund. Hitið ofninn í 180°C og eldið neðarlega í 40-50 mínútur eða þangað til kjúklingurinn er safaríkur og algjörlega tilbúinn.

Sósan
4 msk. ólífuolía
2 msk. gott fljótandi hunang
1 msk. balsamik-edik
1 msk. sítrónusafi
2 msk. appelsínusafi
2 cm bútur af engifer, fínt rifið
½tsk. kanill
pínulítið salt
Skerið sætu kartöflurnar í um það bil munnbita og setjið á ofnplötu með ólífuolíu, salti og pipar. Bakið við 180°C í 30 mínútur. Blandið öllu saman sem á að fara í sósuna og hellið henni yfir kartöflurnar þegar þær koma blússandi heitar út úr ofninum. Bætið hinu hráefninu saman við og berið fram volgt.
Sillumatur.blogspot.com - frábær uppskriftarsíða.

Mystuff.is - kertasíðan hennar Þórdísar.
Svo er hún líka með Facebooksíðu.