Snæfell náði tveggja stiga forskoti á toppnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. nóvember 2012 21:01 Hafþór Ingi Gunnarsson. Mynd/Stefán
Topplið Snæfells lenti í vandræðum með botnlið Tindastóls í Stykkishólmi í kvöld í 7. umferð Dominos-deild karla í körfubolta en vann að lokum tíu stiga sigur, 86-76. Snæfell hefur nú unnið fimm deildarleiki í röð og er með tveggja stiga forskot á toppnum. Sveinn Arnar Davíðsson skoraði 20 stig fyrir Snæfell í kvöld, Hafþór Ingi Gunnarsson var með 18 stig og Jón Ólafur Jónsson skoraði 16 stig og tók 10 fráköst. Jay Threatt, leikstjórnandi Snæfells, var með 12 stig og 12 stoðsendingar í leiknum. Drew Gibson var atkvæðamestur hjá Tindastól með 24 stig, 7 fráköst og 8 stoðsendingar og George Valentine var með 16 stig og 10 fráköst. Stólarnir byrjuðu leikinn af krafti, komust í 14-7 og voru 21-17 yfir eftir fyrsta leikhlutann. Tindastóll náði síðan mest 11 stiga forskoti, 30-19, þegar ein og hálf mínúta var liðin af öðrum leikhlutanum. Hólmarar vöknuðu eftir gott leikhlé frá Inga Þór Steinþórssyni og breyttu stöðunni úr 19-30 í 26-30 á augabragði. Þeir voru síðan komnir tveimur stigum yfir, 41-39, fyrir lok hálfleiksins. Liðin skiptust á góðum köflum í þriðja leikhlutanum en Tindastóll náði fimm stiga forskoti, 59-54, þegar þrjár og hálf voru eftir að leikhlutanum. Snæfellsliðið skoraði þá átta stig í röð og komst í 62-59 en Stólarnir áttu lokaorðið og leiddu 66-65 fyrir lokaleikhlutann. Snæfell var sterkari í lokinn og tryggði sér sigurinn með því að vinna sjö síðustu mínúturnar í leiknum 16-6 þar sem lítið gekk hjá gestunum af Króknum. Tindastóll hefur þar með tapað sex fyrstu deildarleikjum sínum í vetur.Snæfell-Tindastóll 86-76 (17-21, 24-18, 24-27, 21-10)Snæfell: Sveinn Arnar Davíðsson 20/5 fráköst, Hafþór Ingi Gunnarsson 18, Jón Ólafur Jónsson 16/10 fráköst, Jay Threatt 12/5 fráköst/12 stoðsendingar, Asim McQueen 10/6 fráköst, Ólafur Torfason 5/6 fráköst, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 5.Tindastóll: Drew Gibson 24/7 fráköst/8 stoðsendingar, George Valentine 16/10 fráköst, Þröstur Leó Jóhannsson 10/4 fráköst, Helgi Rafn Viggósson 8/7 fráköst, Svavar Atli Birgisson 7/4 fráköst, Ingvi Rafn Ingvarsson 3, Helgi Freyr Margeirsson 3, Hreinn Gunnar Birgisson 3, Sigtryggur Arnar Björnsson 2.
Dominos-deild karla Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Almar ekki í kassanum Fótbolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira