Enn er óvissa um lögmæti tillögunnar 20. janúar 2012 07:00 Össur Skarphéðinsson, Jóhanna Sigurðardóttir og Bjarni Benediktsson greiddu öll atkvæði gegn því að nokkur ráðherra yrði ákærður. Líklegt er að Jóhanna samþykki frávísunartillögu á tillögu Bjarna. fréttablaðið/gva
Frávísunartillaga kemur fram í dag vegna tillögu Bjarna Benediktssonar um afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde. Margir þingmenn telja að verði málinu ekki vísað frá þurfi þingnefnd að ganga í störf Landsdóms. Skýrt kemur fram í skýringum með lögum um Landsdóm að með ákæru sé málið úr höndum Alþingis. Tillaga Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um að Alþingi falli frá ákæru á hendur Geir H. Haarde, verður tekin fyrir á Alþingi í dag. Tillagan hefur valdið miklum titringi innan þingsins og óvíst er hver afdrif hennar verða, en ljóst er að hún verður tekin til umræðu í dag. Rökstudd dagskrártillaga hefur verið í smíðum en, líkt og greint er frá hér til hliðar, felur hún í sér að umræða fer fram um málið en ekkert meira verður gert við það. Heimildir Fréttablaðsins herma að stuðningur við þá málsmeðferð hafi aukist. Svo virðist sem fjölmargir þingmenn hafi talið að frávísun málsins hefði það í för með sér að ekki færi fram umræða um málið, heldur yrði því vísað frá áður en til hennar kæmi. Það hugnaðist mörgum lítt, en meiri stuðningur er við það að fara þá leið sem rökstudd dagskrártillaga felur í sér. Í hlutverk LandsdómsVerði dagskrártillagan felld og málið fái þinglega meðferð verður því vísað í nefnd á mili umræðna. Þá þurfa þeir þingmenn sem í nefndinni sitja að taka efnislega afstöðu til ákærunnar á hendur Geir; það er hvort ástæða sé til að draga hana til baka. Guðmundur Steingrímsson, þingmaður utan flokka, segir það umhugsunarefni og veigamikil rök fyrir frávísun. Sjálfur sé hann þó ekki endanlega búinn að gera upp hug sinn. „Ég sé ekki betur en að nefnd væri að ganga í störf landsdóms ef hún færi að taka efnislega afstöðu til þess hvort Geir sé sekur eða saklaus. Ef þingmannanefnd færi að fjalla um málið væri hún í raun og veru einnig að fjalla um spurninguna um sekt eða sakleysi. Þannig gengur hún í störf Landsdóms og það er eitthvað sem við eigum ekki að gera.“ Guðmundur bendir einnig á að málið sé komið á allt annan stað nú en þegar afstaða var tekin til ákærunnar í september. Guðmundur kaus þá gegn ákæru á hendur öllum fjórum ráðherrunum fyrrverandi. "…engin skipti af málinu…“Mikil umræða hefur farið fram um hvort málið sé löglegt. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, lét fara fram mat á tillögunni og niðurstaða þess var að hún væri þingtæk. Það hafa þó fjölmargir gagnrýnt og Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, hefur gengið svo langt að segja að hafi forseti ekki döngun í sér til að vísa málinu frá eigi einfaldlega að skipta um forseta. Lögin um Landsdóm eru frá árinu 1963 og eru samin af Ólafi Jóhannessyni, einum helsta lagaspekingi landsins, sérstaklega hvað varðar stjórnsýslurétt. Bjarni Benediktsson, þá formaður Sjálfstæðisflokksins, mælti fyrir málinu. Í athugasemdum með frumvarpinu segir frá því að Alþingi skipi fimm manna saksóknarnefnd, til að gefa Alþingi, sem fer með ákæruvaldið, kost á að fylgjast með saksókninni. Þá kemur setning sem virðist býsna afgerandi um hug löggjafans: „En eins og nú er, hefur Alþingi engin skipti af málinu, eftir að það hefur kjörið sóknara.“ Lögfræðingar sem Fréttablaðið ræddi við töldu því einboðið að tillaga Bjarna bryti í bága við vilja löggjafans. Seinni tíma skýringar, sem til að mynda Róbert Spanó hefur talað fyrir, hafi ekki tekið á því máli. Þess ber þó að geta að enginn þeirra vildi koma fram undir nafni. Málið gert pólitísktAfstaða Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra, sem ætlar að styðja tillögu Bjarna, hefur farið illa í margan stjórnarliðann. Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, segir hins vegar fráleitt að láta eins og málið snúist um heilsu og lífvænleika ríkisstjórnarinnar. Að minnsta kosti tveir af níu ráðherrum, Ögmundur og Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, hyggist styðja málið og því sé slíkur málatilbúnaður út í hött. „Það er líka stóralvarlegt mál að gera umræðu um sakamál gegn einstaklingi að flokkspólitísku máli og það stórskaðar málatilbúnað þeirra sem stóðu að ákærunni á sínum tíma. Það skapar þá augljósu hættu að menn telji að um pólitísk réttarhöld sé að ræða. Yfirlýsingar flokksfélaga gera heldur ekkert annað en að styðja varnir sakborningsins og fjölga áfrýjunarmöguleikum hans og veikja þannig málatilbúnaðinn af hálfu ríkisins,“ segir Árni Páll, en nokkur flokksfélög Vinstri grænna hafa ályktað um að halda ætti ákærunni til streitu.
Landsdómur Mest lesið Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Innlent Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Innlent Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Innlent Íslendingar skipi sér í hóp með öfgaríkjum Innlent Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Erlent Kristinn ekki bænheyrður Innlent Segist saklaus Innlent Rétt að leita svara hjá Alþjóðadómstólnum og óttast ekki afleiðingar Innlent Mátti kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Innlent Á annan tug ferðalanga fastir á Holtavörðuheiði Innlent Fleiri fréttir Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Áætla að 188 frelsissviptir útlendingar hefðu verið vistaðir í nýja úrræðinu Sigríður Ingibjörg ráðinn nýr framkvæmdastjóri BSRB Á annan tug ferðalanga fastir á Holtavörðuheiði Íslendingar skipi sér í hóp með öfgaríkjum Umdeild málsókn, sviptingar í fjölmiðlum og verðhækkanir Þó nokkur snjóflóð fallið og loka Flateyrarvegi í kvöld Fjögurra vikna gæsluvarðhald eftir hópárás Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Sýkna Landsbankann af kröfum Quang Le Kristinn ekki bænheyrður Landsréttur tók ekki heldur mark á lygilegri frásögn Fimm ár fyrir stangir fullar af amfetamíni Mátti kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Umsókn Miðflokksins í klúbb evrópska íhaldsmanna ekki svarað Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Samtal hafið um Ísafjarðarflug Ferðamenn valdi fleiri slysum en ölvaðir eða ungir ökumenn Miðflokkur kynnir sex efstu í Garðabæ Rétt að leita svara hjá Alþjóðadómstólnum og óttast ekki afleiðingar Norðanhríð fyrir vestan og Ísland í máli gegn Ísrael Þau eru á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Ísland tekur þátt í máli gegn Ísrael Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Meðalbiðtími fimmfalt lengri en viðmið landlæknis Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Óvissustig í Súðavíkurhlíð Sjá meira