Montrétturinn er líka undir hjá þeim í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. apríl 2012 11:00 Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflavíkur. Mynd/Stefán
Það skýrist í kvöld hver tvö síðustu liðin verða í undanúrslitum Iceland Express-deildar karla þegar oddaleikir átta liða úrslitanna fara fram. Stjarnan tekur á móti Keflavík í Ásgarði í Garðabæ og Þór fær Snæfell í heimsókn í Icelandic Glacial-höllina í Þorlákshöfn. Það má segja sem svo að sætið í undanúrslitunum sé ekki bara undir hjá þeim Teiti Örlygssyni, þjálfara Stjörnunnar, og Sigurði Ingimundarsyni, þjálfara Keflavíkur, sem eru að mætast í úrslitakeppninni í ellefta sinn á ferlinum. Svo skemmtilega vill til að staðan er ekki bara 5-5 milli þeirra í unnum einvígum heldur hafa þeir jafnframt unnið þrjá oddaleiki hvor á móti öðrum líka. Sigurður vann þann fyrsta þegar Keflavík sló Njarðvík úr undanúrslitunum 1990 eftir sigur í tvíframlengdum oddaleik. Teitur vann síðan þrjá oddaleiki í röð á móti Sigurði, þar á meðal úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn 1991. Sigurður hefur síðan unnið tvo síðustu oddaleiki þeirra félaga, úrslitaleik um titilinn 1999, þegar Sigurður var þjálfari Keflavíkur en Teitur leikmaður Njarðvíkur, og svo þegar Njarðvík sló Stjörnuna út úr átta liða úrslitunum fyrir tveimur árum. Sigurður hefur alls tekið þátt í 22 oddaleikjum á ferlinum og unnið 13 þeirra (59 prósent) en Teitur hefur unnið 11 af 18 oddaleikjum sínum (61 prósent), þar af tíu þeirra sem leikmaður. Teitur og lærisveinar hans ættu að vera farnir að þekkja þessa stöðu mjög vel því þeir eru fjórða árið í röð í oddaleik í átta liða úrslitunum. Stjarnan féll úr leik 2009 og 2010 en komst áfram í fyrsta sinn í fyrra og fór þá alla leið í úrslitaeinvígið. Keflvíkingar eru líka vanir þessari stöðu en þeir hafa unnið oddaleik í átta liða úrslitum undanfarin tvö ár en ólíkt leiknum í kvöld þá voru þeir báðir í Toyota-höllinni í Keflavík.
Dominos-deild karla Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Almar ekki í kassanum Fótbolti Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira