Við látum verkin tala Jóhanna Sigurðardóttir skrifar 12. maí 2012 06:00 Það er fagnaðarefni á þriggja ára afmæli ríkisstjórnarinnar að meirihluti Alþingis skuli samþykkja þingsályktunartillögu mína um breytingar á skipan ráðuneyta. Þann lærdóm mátti draga af skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis að þörf væri á því að efla ráðuneytin. Þeim verður nú fækkað í átta en ráðuneytin voru 12 í upphafi kjörtímabilsins. Ég er þess fullviss að breytingarnar á Stjórnarráðinu munu marka tímamót og gera stjórnsýsluna sterkari, faglegri og betri, ekki síst á sviði umhverfis-, auðlinda-, atvinnu- og efnahagsmála. Þrátt fyrir hrakspár stjórnarandstöðunnar gefast hér mörg tækifæri til bættra samskipta framkvæmdavalds og löggjafarvalds. Síðast en ekki síst geta breytingarnar einfaldað samskipti Stjórnarráðsins og samfélagsins alls og gert þau markvissari. Við erum aðeins 320 þúsund manna þjóð og þurfum á því að halda að stjórnkerfi okkar sé einfalt og þjóni landsmönnum öllum á skilvirkan og opinn hátt.Næst er það stjórnarskráin Í næstu viku tekur Alþingi fyrir eitt af brýnustu stefnumálum ríkisstjórnarinnar en það eru breytingar á stjórnarskránni. Það er von mín og ríkisstjórnarinnar allrar að takast megi að bera megintillögur stjórnlagaþings undir þjóðina í haust í almennri atkvæðagreiðslu. Þetta er mikilsvert mál og á rætur í heitstrengingum margra stjórnmálaflokka um áratugi, meðal annars til að innleiða á Íslandi bætt siðferði og aukið lýðræði. Það væri sannast sagna með ólíkindum ef minnihluti þingsins héldi áfram uppi málþófi til þess að koma í veg fyrir framgang þessa máls í trássi við vilja meirihluta þingsins og þriggja fjórðu hluta kjósenda.Sanngjarnt afgjald og atvinnuuppbygging Þegar liðin eru rétt þrjú ár af kjörtímabilinu stendur ríkisstjórnin enn í ströngu eins og landsmenn verða áþreifanlega varir við þessa dagana. Það sést meðal annars í auglýsingum útgerðarvaldsins í landinu gegn áformum ríkisstjórnarinnar um breytt fiskveiðistjórnunarkerfi og hækkun veiðigjalds sem stendur til að innheimta af lögmætri eign almennings. Heimilin í landinu máttu þola miklar búsifjar þegar gengi krónunnar hrundi með bankakerfinu haustið 2008. Þá fluttust gífurlegir fjármunir frá heimilunum ekki síst til greina sem hafa tekjur sínar í erlendum gjaldeyri líkt og sjávarútvegurinn. Það er auðvitað sanngjarnt að almannasjóðir taki til sín hluta af þeirri auknu framlegð sem sjávarútvegurinn fékk í sinn hlut með gengishruninu. Ég veit að útgerðarmenn eru þessu ekki alls kostar ósammála og að þeir vita jafn vel og aðrir að þeir hafa ekki sjálfdæmi um það frekar en aðrir hvað greinin greiðir í almannasjóði til að halda úti velferðarkerfi og grafa jarðgöng til samgöngubóta svo nokkuð sé nefnt. Ég er þess fullviss að þeir muni virða rétt lýðræðislega kjörinna valdhafa til þess að taka endanlegar ákvarðanir um auðlindirnar. Eðlilegt gjald af auðlindum hafsins mun meðal annars gera ríkisstjórninni kleift að hraða samgöngubótum, uppbyggingu græna hagkerfisins og sóknaráætlun landshluta.Stjórnarstefnan skiptir máli Svo virðist sem hrakspár og bölmóður stjórnarandstöðunnar magnist eftir því sem fréttum af árangursríkum verkum ríkisstjórnarinnar fjölgar. Sýnt hefur verið fram á að ríkisstjórninni hefur tekist með eftirtektarverðum hætti að snúa af braut vaxandi ójöfnuðar. Augu stjórnmálamanna víða um lönd opnast æ betur fyrir því að aukinn tekjujöfnuður og varðstaða um kjör hinna lægst launuðu er ekki aðeins grundvallarverkefni ríkisstjórna sem kenna sig við jöfnuð, umhverfis- og vinstristefnu, heldur bætir hún líðan almennra borgara og ýtir undir hagvöxt. Hagvöxtur hér á landi er raunar með því mesta sem um getur í allri Evrópu og spár eru á þann veg að hann aukist næstu árin fremur en hitt. Samanburðargögn sýna einnig að innan Evrópu er hættan á fátækt og félagslegri einangrun minnst hér á landi. Hér við bætist að atvinnuþátttaka var um síðustu áramót meiri hér á landi en í öðrum löndum Evrópu og atvinnuleysi er með því minnsta sem gerist þótt enn sé það um sjö prósent. Störfum hefur fjölgað um 1.300 milli ára og að minnsta kosti 1.000 færri leita nú að vinnu en gerðu um síðastliðin áramót.Við tekur uppbyggingin Á þremur árum var ríkissjóði, tugþúsundum heimila og flestum fyrirtækjum landsins forðað frá gjaldþroti í einu umfangsmesta efnahagsáfalli sögunnar. Samdrætti var jafnframt snúið í vöxt þjóðarkökunnar á undraskömmum tíma. Eftir þessu hefur verið tekið þannig að nú hefur íslenska ríkið vaxandi traust og ágætan aðgang að erlendu lánsfé. Á sama tíma var snúið af braut mestu ójafnaðarþróunar sem vestrænt land hefur gengið í gegnum á síðari árum og tekjuskipting jöfnuð með svo afgerandi hætti að nú er Ísland í hópi þeirra landa þar sem jöfnuður og félagslegt réttlæti eru hvað mest. Loks hefur stjórnkerfinu verið umbylt með fækkun ráðuneyta og breyttum stjórnarháttum byggðum á lærdómum hrunsins. Fullt tilefni er til að fagna á þriggja ára afmæli ríkisstjórnarinnar. Síðasta fjórðung kjörtímabilsins munu hún og Alþingi nýta til áframhaldandi lífskjarasóknar og aðgerða í skuldamálum heimilanna, fjölgunar starfa, endurskoðunar stjórnarskrárinnar, breytinga á fiskveiðistjórnunarkerfinu, framgangi rammaáætlunar um vernd og nýtingu náttúruauðlinda og fjölda annarra þjóðþrifamála í þágu almennings. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jóhanna Sigurðardóttir Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar