Reykjavíkurborg styrkir menningarlífið 17. janúar 2013 17:44 Hluti þeirra sem hlaut styrk. Mynd/Reykjavíkurborg
Einar Örn Benediktsson, formaður menningar- og ferðamálaráðs Reykjavíkurborgar, tilkynnti í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsi í dag um styrkveitingar ráðsins árið 2013. Um leið var Tríó Sunnu Gunnlaugs útnefnt Tónlistarhópur Reykjavíkur 2013 og lék það við athöfnina sem styrkþegum var boðið til. Þrjár hátíðir bættust í hóp þeirra sem njóta samstarfsamnings til þriggja ára úr svokölluðum Borgarhátíðasjóði, sem ætlað er örva nýsköpun í hátíðahaldi í Reykjavíkurborg: Hinsegin dagar - Reykjavík Gay Pride fær 5 m.kr., Lókal, leiklistarhátíð 2,5 m.kr. og Reykjavík Dance Festival 2 m.kr. árlega 2013, 2014 og 2015. Hinsegin dagar fá því alls 15 milljónir króna yfir þriggja ára tímabil og er stærsti einstaki styrkhafinn. Eftirtaldar hátíðir verða áfram á samningi árin 2013 og 2014: Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves með 10 m.kr. árlega, Hönnunarmars 5 m.kr., Jazzhátíð í Reykjavík 3 m.kr. og Blúshátíð í Reykjavík, Bókmenntahátíð í Reykjavík, Myrkir músikdagar og Food&Fun. með 2 m.kr. hver. Einnig var samþykkt að gera samstarfssamninga við eftirtalda til þriggja ára vegna áranna 2013 til 2015 með fyrirvara um heimildir í fjárhagsáætlun 2014 og 2015: Heimili kvikmyndanna til rekstrar Bíós Paradísar með 5.5 m.kr á ári, Nýlistasafnið til rekstrar safnsins 5 m.kr., Bandalag sjálfstæðra leikhúsa til rekstrar skrifstofu SL og Tjarnarbíós 2.4 m.kr, Kling og Bang til rekstrar gallerís 2 m.kr., Samtök um danshús til rekstrar dansverkstæðis 1.9 m.kr. og Myndhöggvarafélagið í Reykjavík til rekstrar verkstæðis og útisýninga í Höggmyndagarðinum 1.4 m.kr. Tríó Sunnu Gunnlaugs hlýtur 1 milljón króna sem Tónlistarhópur Reykjavíkur 2013. Í fréttatilkynningunni segir að Sunna Gunnlaugsdóttir hafi um árabil verið í röð okkar fremstu djasspíanóleikara en tríóið skipa auk hennar Þorgrímur Jónsson á kontrabassa og Scott McLemore á trommur. Ráðgefandi faghóp um styrkina skipuðu Sólrún Sumarliðadóttir formaður, Gunnar Hrafnsson, Lárus Ýmir Óskarsson, Ólöf Nordal og Randver Þorláksson. Yfirlit yfir styrkhafana 91Tríó Sunnu Gunnlaugs ásamt Einari Erni.Mynd/Reykjavíkurborg1.6 m.kr. Ca Caput, Kammersveit Reykjavíkur og Stórsveit Reykjavíkur1 m.kr. Kirkjulistahátíð, Múlinn jassklúbbur, Nýsköpunarsjóður tónlistar-Musica Nova, Sequences og Undir berum himni850 þús. kr. Common Nonsense sf.og Lab Loki750 þús. kr. Reykjavík Fashion Festival700 þús. kr. Vesturport og Choreography Reykjavík600 þús. kr. List án landamæra, Listafélag Langholtskirkju, Sinfóníuhljómsveit unga fólksins og Félag kvikmyndagerðamanna v. Reykjavík Shorts and Docs550 þús. kr. Handverk og hönnun500 þús. kr. Afkimi v. Reykjavík Music Mess, Möguleikhúsið, Kárahnjúkar v. SONAR, Camerarctica, Kunstschlager, 15:15 tónleikasyrpan, Listvinafélag Hallgrímskirkju, Alþjóðlega tónlistarakademían í Hörpu, Heimstónlist í Reykjavík, Kviss búmm bang, Vinnslan og Lorna félag áhugamanna um rafræna list400 þús. kr. Íslensk grafík, Gjörningaklúbburinn, Nordpaa/Norður, 7 generations, Sinfóníuhljómsveit áhugamanna, Hjörtur Jóhann Jónsson, Sögusvuntan, Kriðpleir leikhópur, Kammer-músíkklúbburinn, Melkorka S. Magnúsdóttir, Vignir Rafn Valþórsson, Vigdís Jakobsdóttir, IBBY á Íslandi, Menningar-félagið, Elektra Ensemble, Nordic Affect og Alþýðuóperan350 þús. kr. Tónlist á gráu svæði v.Jaðarber, Lúðrasveitin Svanur, Lúðrasveit Reykjavíkur, Lúðrasveit verkalýðsins, Halaleikhópurinn og Barnamenningarfélagið Skýjaborg300 þús. kr. Reykjavík Folk Festival, Stoppleikhópurinn, Tinna Lind Gunnarsdóttir, Leikhópurinn Draumasmiðjan, Tangófélagið, Gallerí ÞOKA, Félag íslenskra samtímaljósmyndara, Berglind María Tómasdóttir, Ásgerður Guðrún Gunnarsdóttir, Sara Riel, Ástarmafían, Kristín G. Gunnlaugsdóttir, Katrín Bára Elvarsdóttir, Háaloftið, Hljómsveitakeppnin Wacken Metal Battle, Leifur Þór Þorvaldsson og Hannes Óli Ágústsson260 þús. kr. Leikfélagið Hugleikur250 þús. kr. Vox Feminae200 þús. kr. Tjarnarleikhópurinn, Emilía Rós Sigfúsdóttir, Kvenréttindafélag Íslands, Katrín I Jónsd. Hjördísardóttir, Rauði þráðurinn, Félag íslenskra tónlistarmanna, Valgerður Rúnarsdóttir og Raflistafélag Íslands150 þús. kr. Artíma galleri, Kór Breiðholtskirkju, Tríó Reykjavíkur, Voces Thules, Leikhús listamanna, Blásaraoktettinn Hnúkaþeyr og Fatahönnunarfélag Íslands100 þús. kr. Nýlókórinn, Áskell Másson, Bára Sigfúsdóttir og Björn Finnsson.
HönnunarMars Mest lesið Kannast ekki við að aðgengi að bílastæðum sé skert Innlent Íhuga að fara inn í Íran til að ná í auðgað úran Erlent Mojtaba Khamenei særður en óhultur Erlent Segir Ísland geta klárað viðræður á einu og hálfu ári Erlent Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Erlent Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Erlent Sjái þegar merki um að forspá um klofningu þjóðarinnar standist Innlent Stúlkan sem leitað var að er fundin Innlent Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Erlent Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Innlent Fleiri fréttir Liðhlaupi úr Samfylkingunni fær annað sætið hjá Framsókn Snjókoma og slydda fyrir norðan en þurrt fyrir sunnan Kannast ekki við að aðgengi að bílastæðum sé skert Sjái þegar merki um að forspá um klofningu þjóðarinnar standist Icelandair meira virði í rekstri en brytjað niður Bíða enn bóta eftir ofbeldið á Hjalteyri: „Við erum týnd og gleymd“ Lokar athugun á eftirliti MAST með blóðmerahaldi án athugasemda Þyrlan kölluð út vegna manns í sjálfheldu Stúlkan sem leitað var að er fundin Kynferðisbrotum sem teljast sérstaklega hættuleg fjölgar Fagráðið harmar brotthvarf Hildigunnar Icelandair verðmætara í rekstri en partasölu Krafði Sigmund svara varðandi MAGA og uppskar skammir Dóttirin hafi viljað „fara“ fyrst Óljóst hvað verður um Kjartan og Mörtu Ráðleggur Þorgerði fram að þjóðaratkvæðagreiðslu Telja eldinn hafa kviknað út frá hleðslutæki Óttast ekki að þjóðaratkvæðagreiðslunni verði seinkað Veðurstofan rýnir breyttar jarðhræringar Kristrún vísar þögn um ESB-málið á bug Sjúklingar enn á göngum bráðamóttökunnar Frekari ESB-umræður í þinginu Lögregla varar enn á ný við vasaþjófum Fundar með lækni frá Úkraínu sem þjónar til borðs á Íslandi Skólastjórinn umdeildi snýr ekki aftur Einn á sjúkrahús eftir árekstur á Hringbraut Hafa dregið rafbyssurnar fram hundrað sinnum Rannsaka kynferðisbrot á Akureyri Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Sjá meira