Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Atli Ísleifsson skrifar 22. október 2026 07:57 Með þessu verður hægt að loka veginum með stuttum fyrirvara, til dæmis þegar slys verða eða þegar færð spillist. Vegagerðin/Valgarður Guðmundsson Vegagerðin hefur tekið í notkun nýjan, fjarstýrðan lokunarbúnað á Reykjanesbraut til vesturs, við mislæg gatnamót skammt frá álverinu í Straumsvík. Með þessu verður hægt að loka veginum með stuttum fyrirvara, til dæmis þegar slys verða eða þegar færð spillist.
Frá þessu segir á vef Vegagerðarinnar. Þar kemur fram að ekki þurfi þá lengur að senda lögreglu, björgunarsveitir eða starfsfólk Vegagerðarinnar á staðinn til að setja upp lokanir, oft við erfiðar aðstæður í myrkri og mikilli umferð. „Lokunin fer fram í nokkrum skrefum til að leiðbeina ökumönnum og beina umferð á öruggan hátt í rétta átt. Hraðinn lækkaður. Hraðaskilti, um 500 metrum frá lokunarstað, lækka leyfðan hámarkshraða úr 90 km/klst. í 70 km/klst. Rauð blikkljós kvikna jafnframt beggja vegna vegarins. Vinstri akrein lokað. Akreinaskilti vísa allri umferð yfir á hægri akrein. Báðum akreinum lokað. Næsta skilti sýnir lokun á báðum akreinum til vesturs. Umferð beint frá brautinni. Síðasta skiltið vísar ökumönnum út af Reykjanesbraut og niður að hringtorginu við Rauðamel. Hjáleið um Reykjanesbraut til austurs. Frá hringtorginu er umferð beint aftur inn á Reykjanesbraut til austurs, í átt að Hafnarfirði og Reykjavík. Lokunarslár fara niður. Fyrst fer sláin við hringtorgið niður og um tíu sekúndum síðar tvær slár á Reykjanesbrautinni sjálfri. Áberandi ljós eru á slánum og rauð blikkljós gefa skýr merki um að lokað hafi verið fyrir umferð. Ökumenn upplýstir áður en komið er að lokun Við álverið í Straumsvík er upplýsingaskilti sem að jafnaði birtir veðurupplýsingar frá Strandarheiði. Þegar Reykjanesbraut er lokað getur Vaktstöð birt þar skilaboð á borð við „Vegur lokaður – snúið við á næstu gatnamótum“ eða „Vegur lokaður vegna umferðaróhapps“. Þannig fá ökumenn upplýsingar um ástæðu lokunar áður en þeir koma að henni og geta brugðist við í tíma. Öryggi í fyrirrúmi Með búnaðinum þarf ekki lengur að senda fólk út á akbrautina til að stöðva umferð, sem er ein hættulegasta stund hvers útkalls. Lögregla, sjúkraflutningamenn og björgunarsveitir geta þannig einbeitt sér að vettvangi og þeim sem á aðstoð þurfa að halda, í stað þess að stýra umferð. Helstu atriði: Staðsetning: Reykjanesbraut til vesturs, við mislæg gatnamót um 1 km frá álverinu í Straumsvík. Lokunarslár: Þrjár, tvær á Reykjanesbraut og ein við hringtorgið við Rauðamel. Hraðalækkun: Úr 90 km/klst. í 70 km/klst. með breytilegum hraðaskiltum um 500 m frá lokun. Hjáleið: Um afrein að hringtorgi við Rauðamel og aftur inn á Reykjanesbraut til austurs. Stýring: Vaktstöð Vegagerðarinnar, í sama SCADA-kerfi og fyrir jarðgöng,“ segir í tilkynningunni.
Umferðaröryggi Hafnarfjörður Umferð Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Fleiri fréttir Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sjá meira