Fimmti bikarslagur Akureyrar og FH á fimm árum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. febrúar 2013 12:15 Mynd/Óskar Andri
Akureyri tekur á móti sjóðheitum FH-ingum í átta liða úrslitum Símabikarsins í Höllinni á Akureyri í kvöld en í boði er sæti í fyrstu undanúrslitunum sem spiluð verða í Laugardalshöllinni. Leikur Akureyrar og FH hefst klukkan 19.00 í Höllinni á Akureyri í kvöld en á sama tíma mætast ÍR og Haukar í Austurberginu. Leikur Selfoss og ÍBV hefst siðan klukkan 19.30. Leiðir liða Akureyrar og FH hafa heldur betur legið saman í bikarnum undanfarin ár því þetta er fimmta árið í röð sem þau mætast í bikarkeppninni. FH-ingar hafa haft betur í þremur af þessum fjórum leikjum en allir sigurleikir FH-liðsins hafa komið í sextán liða úrslitum. Akureyri vann hinsvegar undanúrslitaleik liðanna fyrir tveimur árum. Það er ekki nóg með alla þessa bikarleikir þá hafa þau einnig mæst í úrslitakeppninni undanfarin tvö ár og liðin mættust líka í Flugfélags Íslands bikarnum á dögunum þar sem FH-liðið vann 28-24. Liðin gerðu 23-23 jafntefli á Akureyri í N1-deildinni fyrr í vetur og Akureyringar unnu síðan 26-23 sigur í Kaplakrika í hinum deildarleiknum. Sá leikur er einmitt síðasti tapleikur FH því FH-ingar hafa unnið alla sjö deildar og bikarleiki sína frá þeim tíma og þar með öll liðin í N1-deildinni nema Akureyri.Bikarleikir Akureyrar og FH síðustu ár:16 liða úrslit 2011-2012 Sun. 13.nóv.2011, Kaplakriki FH - Akureyri 34-21 (16-9)Undanúrslit 2010-2011 Mán. 14.feb.2011, Höllin Akureyri Akureyri - FH 23-20 (13-9)16 liða úrslit 2009-2010 Sun. 15.nóv.2009, Höllin Akureyri Akureyri - FH 22-23 (10-16)16 liða úrslit 2008-2009 Sun. 9.nóv.2008, Kaplakriki FH - Akureyri 37-31 (16-19)
Olís-deild karla Mest lesið Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Körfubolti Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Handbolti Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi Enski boltinn Williams mun spila í einliða leik á Opna bandaríska risamótinu Sport Framlengir þrátt fyrir að liðið sé í verri stöðu Formúla 1 „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Enski boltinn Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Enski boltinn Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Íslenski boltinn Rodri genginn í raðir Barcelona Fótbolti Norsku Víkingarnir gerðu jafntefli í Zagreb Fótbolti Fleiri fréttir Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Elvar fer frá Magdeburg til Löwen: „Frábær bónus að spila með Hauki frænda“ Glænýtt gólf fyrir frumraun Arons en stúkurnar bíða Daníel með slitna hásin Kallar eftir naflaskoðun í norskum handbolta: „Bilið í fremstu þjóðir hefur aukist“ Rifu sig upp eftir vonbrigðin í gær og unnu Frakka eftir rosa endasprett Raunveruleiki sem þú getur ekki forðast Uppgjörið: Ísland - Þýskaland 31-33 | Þjóðverjar áttu alltaf svar Fylgist stoltur með litla bróður á EM: „Verið draumur hans í mjög langan tíma“ Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Mögnuð tilþrif Íslendingsins unga vekja athygli Viktor Gísli framlengir við Barcelona Stráklingarnir okkar fóru illa með Króata í fjórða sigrinum í röð á EM Costa-bræðurnir eftirsóttu völdu Flensburg Unnu leikina í riðlinum með samtals 32 mörkum og Króatar og Portúgalir bíða Strákarnir áfram með fullt hús Ungverjagrýlan hrjáir ekki U18 lið Íslands Yngsti Skipagötu-bróðirinn skoraði þrettán mörk í fyrsta leik á EM Fjórtán marka stórsigur í fyrsta leik Var sagt upp á stórafmælinu og er haldinn út í heim Besti handboltamaður heims fór í markið Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Sjá meira