Keflvíkingar geta náð lengstu sigurgöngu vetrarins í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. febrúar 2013 15:00 Darrel Keith Lewis hefur skorað 20,3 stig að meðaltali í leik fyrir Keflavík eftir áramót. Mynd/Daníel
Keflvíkingar eiga möguleika á því að vinna sinn sjöunda leik í röð í Domnios-deild karla í körfubolta í kvöld þegar þeir fá Tindastól í heimsókn í Toyota-höllina í Keflavík. Keflavík er eitt þriggja liða sem hefur náð að vinna sex deildarleiki í röð á þessu tímabili. Keflvíkingar hafa ekki tapað deildarleik síðan að þeir töpuðu á móti Njarðvík á heimavelli í síðasta leik sínum fyrir áramót. Þór úr Þorlákshöfn var fyrsta liðið til þess að ná því að vinna sex deildarleiki í röð á leiktíðinni en þeir unnu sinn sjötta sigurleik í röð á móti Snæfelli í Hólminum 13. desember. Sigurganga Þórs endaði með 72-76 tapi á móti Skallagrími á heimavelli í fyrsta leik ársins 2013. Grindvíkingar unnu sinn sjötta leik í röð þegar þeir unnu Tindastóll 4. janúar síðastliðinn. Sigurganga Grindavíkur endaði með 98-106 tapi á móti Keflavík á heimavelli 10. janúar síðastliðinn. Grindvíkingar hafa síðan unnið fimm leiki í röð og eru því með 11 sigra í síðustu 12 leikjum. Keflavík hefur unnið þessa sex leiki á móti eftirfarandi liðum: ÍR (111-84), Grindavík (106-98), Stjörnunni (107-103), KR (100-85), KFÍ (111-102) og Fjölni (113-101). Tveir leikir fara fram í kvöld því Þór Þorlákshöfn tekur á sama tíma á móti KFÍ á heimavelli sínum í Icelandic Glacial höllinni í Þorlákshöfn. Báðir leikirnir hefjast klukkan 19.15.
Dominos-deild karla Mest lesið Crystal Palace vann Samfélagsskjöldinn Enski boltinn Sveindís Jane til bjargar á síðustu stundu Fótbolti Hafþór Júlíus fagnaði tólfta titlinum með því að rífa bolinn af sér Sport Leik lokið: Valur - Breiðablik 2-1 | Dramatískt sigurmark Vals í uppbótartíma Íslenski boltinn Leik lokið: Víkingur - Stjarnan 2-4 | Stjarnan með sannfærandi sigur gegn Víkingi Íslenski boltinn Mo Salah krefur UEFA um svör vegna Palestínu Pele Enski boltinn Arnar með met í 100 km: „Sýnist þetta vera níundi hraðasti tíminn í heiminum“ Sport Fór holu í höggi í beinni í sjónvarpinu Golf Uppgjör: Vestri-Fram 3-2 | Vestri með sigurmark í uppbótatíma Íslenski boltinn Uppgjörið: KA - ÍBV 1-0 | Dagur Ingi tryggði KA mikilvæg stig Fótbolti Fleiri fréttir Pólland missir NBA stjörnu fyrir Eurobasket Stelpurnar töpuðu þrátt fyrir frábæra byrjun Stockton segir að LeBron „hafa notað þyrlu til að komast á toppinn“ Serbi inn í teig hjá Stólunum: „Ég veit að áhorfendurnir elska körfubolta“ Stelpurnar spila um sjöunda sætið á Eurobasket „Þeir eiga allir skilið að fara í lokahópinn“ Stelpurnar Norðurlandameistarar og strákarnir fengu silfur Þýskaland lagði Slóvena í undirbúningi fyrir Eurobasket Celtics festa þjálfarann í sessi NBA stjarna borin út Litáen of stór biti fyrir íslensku stelpurnar Öruggar með besta árangur Íslands á EM frá upphafi Ákærður fyrir að hnupla treyju LeBron sem seldist seinna á nær hálfan milljarð Ísland í átta liða úrslit eftir ótrúlega endurkomu Dildó-faraldurinn heldur áfram í WNBA Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Stórskotasýning Sigtryggs dugði ekki til sigurs Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Grindavík fær leikstjórnanda frá Grikklandi Stórt tap á Ítalíu Ísland mátti þola stórt tap Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles Fékk vægt áfall: „Með fullt af missed calls“ Stjórnendur NBA reyna að sannfæra Real Madrid og fleiri forrík félög KR sækir ungan bakvörð „Sýna að maður eigi það skilið“ Segir að þeim besta í heimi sé skítsama Álftanes bætir Bandaríkjamanni við hópinn „Númer eitt, tvö og þrjú að knúsa þau sem mest“ Sjá meira