Svíar streyma brátt til Danmerkur að kaupa ódýran bjór og gosdrykki 19. mars 2013 06:46
Svíar hugsa nú gott til glóðarinnar að geta keypt ódýran bjór og gosdrykki í Danmörku á næstunni, og sparað sér þar með ferð til Þýskalands. Fjallað er um málið á vefsíðu börsen. Þar segir að ef áform danskra stjórnvalda um lækkun á sköttum og gjöldum á bjór og gosdrykkjum nái fram að ganga séu Svíar reiðubúnir. Búast megi við að þeir keyri innkaupakerrur af stærri gerðinni, hlaðnar bjór og gosdrykkjum, út úr dönskum verslunum í Frederikshavn, Helsingör og Kaupmannahöfn á næstunni. Þegar er byrjað að fjalla um þessa gósentíð í sænskum fjölmiðlum. Þannig segir í blaðinu Expressen að brátt muni Svíar streyma til Danmerkur til að kaupa ódýran bjór, sænskum brugghúsum til mikillar hrellingar. Hér er ekki um nein smáviðskipti að ræða. Samkvæmt upplýsingum frá sambandi sænskra brugghúsa flytur sænskur almenningur inn til landsins um 100 milljónir lítra af bjór á hverju ári. Þetta magn samsvarar um fjórðungi af allri bjórdrykkju í Svíþjóð.
Mest lesið Hreyfing: Ekki lengur þörf á að greiða tugi þúsunda yfir mánuðinn Atvinnulíf Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Viðskipti innlent Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Viðskipti innlent Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Viðskipti erlent Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Hættu í megrun: „Það varð eiginlega allt vitlaust“ Atvinnulíf Stefán Atli gengur til liðs við Öryggismiðstöðina Viðskipti innlent Segir Seðlabankann vera að falla í sömu gryfju og fyrir hrun Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira