Píratar á ystu nöf Jón Hákon Halldórsson skrifar 28. apríl 2013 02:15 Birgitta Jónsdóttir, einn af kapteinum Pírata, sést hér lengst til vinstri. Mynd/ Daníel.
Samkvæmt útreikningum fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis fá Píratar þrjá þingmenn kjörna eins og staðan er núna þegar klukkan er korter yfir tvö. Staðreyndin er sú að samkvæmt útreikningum Vísis og þeim forsendum sem liggja að baki þeim útreikningum fær flokkurinn þrjá uppbótarþingmenn. Útreikningar RÚV og mbl.is sýna ekki það sama, heldur benda útreikningar þeirra til þess að flokkurinn fái ekki menn kjörna. Ástæðan fyrir þessu er líklegast sú að forsendur að baki útreikningum jöfnunarþingmanna er ekki sú sama. Útlit er fyrir að staða Pírata muni breytast ótt og títt eftir því sem líður á nóttina. Í skýrslu Þorkels Helgasonar stærðfræðings eftir kosningar 2009 segir Þorkell að áður en kemur að ráðstöfun jöfnunarsæta þurfi að aðgæta hvaða stjórnmálasamtök (flokkar) koma til álita. „Í kosningalögunum frá 2000 (og í samsvarandi stjórnarskrárákvæði) er það nýmæli að settur er 5% þröskuldur, sem veitir um leið rétt: Þau samtök ein sem hafa náð 5% landsfylgi skulu koma til álita við úthlutun jöfnunarsæta,“ segir Þorkell og klikkir út með því að segja að áður hafi verið miðað við að samtök hefðu hlotið eitt eða fleiri kjördæmissæti.
Kosningar 2013 Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira