Vínkjallari veitingahússins elBulli seldur á uppboði í Hong Kong 22. apríl 2013 07:35
Vínkjallari hins heimsfræga veitingahúss elBulli á Spáni hefur verið seldur á uppboði í Hong Kong. Vínkjallarinn var hluti af voruppboði Sotheby´s í Hong Kong fyrr í mánuðinum og fengust 1,8 milljónir dollara fyrir hann eða yfir 200 milljónir króna. Þetta var tugum milljóna króna yfir verðmatinu á vínkjallaranum fyrir uppboðið en mikið líf og fjör var á staðnum þegar flöskurnar voru boðnar upp að því er segir á vefsíðunni luxury insider. Af dýrustu vínunum má nefna þrjár flöskur af 1990 árganginum af rauðvíninu Domaine de la Romanée-Conti en þær voru slegnar á yfir 72.000 dollara eða rúmlega 8 milljónir króna. Veitingahúsið elBulli var með þrjár stjörnur í Michelin leiðarvísinum þegar því var lokað árið 2011 eftir stöðugan taprekstur árin á undan. elBulli var fimm sinnum kjörið veitingahús ársins í heiminum á síðasta áratug. Til stendur að opna elBulli að nýju í ár en þá sem elBullistofnunina fyrir matargerðarlist. Raunar rann allur ágóðinn af fyrrgreindu uppboði til þeirra stofnunnar.
Mest lesið Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Viðskipti innlent Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira