Stelpurnar töpuðu stórt á móti Noregi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. maí 2013 19:44 Stella Sigurðardóttir. Mynd/Stefán
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta tapaði með þrettán marka mun á móti Noregi, 20-33, í Nettbuss-æfingamótinu í Gautaborg í Svíþjóð. Íslensku stelpurnar eru að undirbúa sig fyrir umspilsleiki á móti Tékklandi en fyrri leikurinn fer fram á Íslandi um næstu helgi. Íslenska liðið réðu ekki við Þórir Hergeirsson og stelpurnar hans í norska liðinu sem er eitt allra besta landslið í heimi. Norska liðið er reyndar bara skipað leikmönnum sem spila í Noregi en breiddin er mikil hjá Norðmönnum. Norska liðið var með átta marka forskot í hálfleik, 18-10. Stella Sigurðardóttir var markahæst í íslenska liðinu með fimm mörk en Karen Knútsdóttir var kosin besti leikmaður íslenska liðsins í leiknum af mótshöldurum. Stine Bredal Oftedal og Sanne Solberg voru markahæstar í norska landsliðinu með fimm mörk hvor. Íslenska liðið tapaði með fimm marka mun á móti Svíþjóð á föstudagskvöldið en mætir Serbíu í lokaleiknum á morgun. Noregur er búið að vinna báða leikina sína en Serbía vann 28-27 sigur á Svíþjóð fyrr í dag.Mörk Íslands í leiknum: Stella Sigurðardóttir 5, Rakel Dögg Bragadóttir 4, Karen Knútsdóttir 3, Hanna Guðrún Stefánsdóttir 2, Jóna Margrét Ragnarsdóttir 2, Karólína Lárudóttir 2, Arna Sif Pálsdóttir 1, Ramune Pekaskyte 1. Stella Sigurðardóttir skoraði níu mörk á móti Svíum og hefur því verið markahæst í báðum leikjum Íslands á mótinu.
Íslenski handboltinn Handbolti Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Körfubolti Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli Körfubolti Fleiri fréttir Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sjá meira