Hafa margsannað að þær eru bestar í heimi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 16. júní 2013 14:44 Rakel Dögg Bragadóttir í heimaleiknum gegn Tékkum á dögunum. Mynd/Vilhelm
Rakel Dögg Bragadóttir segir íslenska kvennalandsliðið þurfa að hafa gætur á hraðaupphlaupum Norðmanna í landsleik þjóðanna í Laugardalshöll í dag. „Það ótrúlega spennandi að mæta þessu liði og frábært fyrir íslenskan handbolta að þær komi hingað í æfingaferð og vilji spila tvo leiki gegn okkur," segir Rakel Dögg Bragadóttir fyrirliði kvennalandsliðs Íslands í handbolta. Noregur er ríkjandi heims- og Ólympíumeistari þannig að við ramman reip verður að draga fyrir stelpurnar okkar í dag. „Við förum í alla leiki til að vinna en við þurfum að eiga algjöran toppleik til að ná að standa í þeim. Þetta er besta lið í heimi og þær hafa margsannað það," segir Rakel Dögg. Íslenska landsliðið náði ekki að tryggja sér farseðilinn í lokakeppni HM í Serbíu í desember. Liðið beið lakari hlut í tveimur leikjum gegn Tékkum. „Það var auðvitað ákveðið áfall enda stóðu vonir til þess að standa okkur betur og fara áfram. Það var þungt og erfitt. Við höfum hisst nokkrum sinnum, farið yfir stöðuna og klárar í leikinn á eftir." Aðspurð hvað íslensku stelpurnar þurfi að passa sérstaklega varðandi norska liðið segir Rakel: „Við verðum að passa hraðaupphlaupin þeirra. Þær spila rosalega sterka vörn og eru með góðan markvörð. Það er eitthvað sem við þurfum að einbeita okkur að." Leikur Íslands og Noregs hefst klukkan 16 og verður í beinni textalýsingu hér á Vísi.
Íslenski handboltinn Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Handbolti Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Fleiri fréttir Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Sjá meira