Ósátt eiginkona Finnur Thorlacius skrifar 6. ágúst 2013 10:15 Hörmulegur endir ökuferðar
Eitthvað var hún ósátt við eiginmann sinn konan frá Queens í New York er hún ók með hann á húddinu á allt að 130 km hraða nokkra kílómetra og hlýddi í engu beiðni hans um að stöðva bílinn. Þvert á móti varð akstur hinnar 51 árs Maria Espinosa sífellt djarfari, en krappar U-beygjur hennar dugðu ekki til þess að hrista eiginmanninn af bílnum. Ökuferðin endaði á því að hún ók Ford Explorer jeppa þeirra á kyrrstæðan Nissan bíl og klemmdi eiginmanninn á milli. Eins og nærri má geta lifði hann það ekki af. Ástæða ósættis hjónanna mun hafa verið fjárhagslegs eðlis. Ætlaði eiginmaðurinn að nota jeppann, en eiginkonan vildi ekki eftirláta honum lyklana að bílnum, heldur lagði sjálf af stað með hann á húddinu. Vitni af atviki þessu héldu fyrst að verið væri að taka upp bíómynd, en stundum er raunveruleikinn lygilegri en nokkur bíómynd.
Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent