Innlent

Hringvegurinn lokaður og við­varanir í gildi

Smári Jökull Jónsson skrifar
Viðvaranir eru í gildi á öllu landinu.
Viðvaranir eru í gildi á öllu landinu. Veðurstofan

Óveður nálgast nú landið og hafa veðurviðvaranir tekið gildi á öllu landinu. Vindhraði á Stórhöfða í Vestmannaeyjum mældist tæpir 40 m/s klukkan sex í morgun. Þá er búið að loka hringveginum á Suðurlandi.

Appelsínugular viðvaranir tóku gildi á Suðurlandi klukkan 05:00 og er byrjað að hvessa verulega á suðurhluta landsins. Á Stórhöfða mældist vindhraði 37 m/s klukkan 06:00 og vindur í mestu hviðu fór upp í 45 m/s. 

Allt flug á Keflavíkurflugvelli er á áætlun en á vef Reykjavíkurflugvallar kemur fram að næstu upplýsingar fyrir flug til Akureyrar, Egilsstaða og Hornafjarðar verði gefnar klukkan 09:00.

Þá er búið að loka hringveginum austan við Markarfljót og austur að Vík í Mýrdal. Á vef Vegagerðarinnar kemur einnig fram að þar sem spáð sé óvenjulágum þrýstingi yfir landinu í dag geti sjór gengið á land á strandsvæðum, meðal annars við Vík sem og á Djúpavogi, Breiðdalsvík og Stöðvarfirði sem og á Húsavík fyrir norðan.

Á Breiðafirði tekur appelsínugul viðvörun gildi klukkan 11:00, á Vestfjörðum klukkan 17:00 og á Ströndum og Norðurlandi vestra klukkan 21:00 í kvöld.

Fréttin verður uppfærð




Fleiri fréttir

Sjá meira


×