Harmageddon

Komin heim eftir átján mánaða tónleikaferðalag

Frosti Logason skrifar
Brynjar Leifsson í Of Monsters and Men
Brynjar Leifsson í Of Monsters and Men tumblr
Hljómsveitin Of Monsters and Men lauk átján mánaða langri tónleikaferð sinni á miðvikudaginn. Gítarleikari sveitarinnar, Brynjar Leifsson, spjallaði við útvarpsþáttinn Harmageddon í morgun.



Brynjar sagði meðlimi sveitarinnar vera orðna mátulega þreytta á flugferðum og hótelgistingum en kvartaði að öðru leyti ekki yfir hlutskipti sínu.



Hljómsveitin er orðin gríðarlega þekkt út um allann heim en tónleikaferðin spannaði Evrópu, Asíu, Ástralíu, Bandaríkin og Suðu- Ameríku.



„Japan er örugglega svona skrýtnasti staðurinn. Það er svona eins nálægt því og þú getur að vera á annarri plánetu en ert samt á jörðinni“ sagði Brynjar aðspurður um hvaða staðir hefðu verið eftirminnilegastir í ferðinni.



Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni hér að ofan.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.