Jamarco Warren fór ekki langt - samdi við ÍA Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. október 2013 14:30 Zachary Jamarco Warren í leik með Snæfelli. Mynd/Stefán
Zachary Jamarco Warren mun spila áfram körfubolta á Íslandi þótt að Snæfell hafi látið kappann fara á dögunum því þessi bandaríski leikstjórnandi er búinn að semja við 1. deildarlið Skagamanna. Skagamenn segjast ætla að spila hraðari bolta nú þegar þeir hafa Warren innan sinna raða. Jamarco Warren, sem er 177 sm leikstjórnandi, lék sex leiki með Snæfelli í Lengjubikarnum og var með í þeim 17,3 stig að meðaltali auk þess að gefa 5,4 stoðsendingar og taka 5,0 fráköst í leik. „Við fréttum af því á mánudaginn að Snæfell hafi sagt upp samningi sínum við Jamarco og að hann væri bara á leiðinni úr landi. Þar sem Akranes er í leiðinni á milli Stykkishólms og Keflavíkur fannst okkur kjörið að fá hann á æfingu“ sagði Hannibal Hauksson formaður Körfuknattleiksfélags ÍA í viðtali á heimasíðu félagsins. „Hann leit mjög vel út á þessari æfingu, og ennþá betur á annarri æfingunni. Kemur með allt annan hraða inn í liðið sem ég held við ættum að geta nýtt okkur vel í vetur“ sagði Áskell Jónsson, nýráðinn þjálfari ÍA í körfunni, en Áskell tók við liðinu af Sigurði Elvari Þórólfssyni. Jamarco mun væntanlega spila sinn fyrsta leik í kvöld þegar Hamar tekur á móti ÍA í Hveragerði í opnunarleik 1. deildarinnar. Leikurinn hefst klukkan 19.15.
Dominos-deild karla Mest lesið Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport ÍA – Víkingur R. | Toppliðið í bikarleik uppi á Skaga Íslenski boltinn Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Almar ekki í kassanum Fótbolti Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Fleiri fréttir Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Sjá meira