Tók 24 fráköst en var samt ekki frákastahæstur í liðinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. nóvember 2013 15:30 Birgir Björn Pétursson (númer 15) fagnar sæti í Domnios-deildinni síðasta vor með félögum sínum í Val. Mynd/Heimasíða Vals
Valsmennirnir Birgir Björn Pétursson og Chris Woods voru í miklum ham í gærkvöldi þegar Valsliðið vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu. Valur vann þá 97-89 sigur á Þór úr Þorlákshöfn í sjöttu umferð Dominos-deildar karla í körfubolta. Saman tóku Birgir og Woods 49 fráköst í leiknum þar af 27 þeirra í sókn. Allt Þórsliðið var með 35 fráköst þar af 27 þeirra undir sinni eigin körfu. Valsliðið vann fráköstin því með 32 sem eru mögnuð tölfræði. Fyrir vikið tók Valsliðið 104 skot á móti "aðeins" 68 skotum Þórsara og það dugði ekki Þorlákshafnarbúum að hitta betur (44 prósent á móti 38 prósent) eða að fá 14 fleiri víti (32 á móti 18). Birgir og Woods komu sér með þessu fyrir í tveimur efstu sætunum yfir flest fráköst í einum leik í Dominos-deild karla í körfubolta en enginn leikmaður hefur tekið fleiri fráköst í einum leik en þeir tveir í Vodafone-höllinni í gær. Birgir og Woods voru báðir með tröllatvennu í leiknum. Birgir var með 23 stig og 25 fráköst en Woods tók 24 fráköst og skoraði 30 stig. Þeir skoruðu saman 25 tveggja stiga körfur og flestar þeirra eftir sóknarfráköst.Flest fráköst í einum leik í Dominos-deild karla í vetur: 25 - Birgir Björn Pétursson, Val (Valur - Þór Þ., 14-11-2013) 24 - Chris Woods, Val (Valur - Þór Þ., 14-11-2013) 22 - Pavel Ermolinskij, KR (Snæfell - KR, 24-10-2013) 21 - Michael Craion, Keflavík (Valur - Keflavík, 31-10-2013) 21 - Chris Woods, Val (Grindavík - Valur, 24-10-2013) 19 - Chris Woods, Val (Valur - Njarðvík, 17-10-2013) 18 - Terrence Watson, Haukum (Haukar - Grindavík, 18-10-2013) 18 - Terrence Watson, Haukum (Stjarnan - Haukar, 07-11-2013) 17 - Terrence Watson, Haukum (Haukar - Valur, 11-10-2013) 16 - Nemanja Sovic, Þór Þ. (Keflavík - Þór Þ., 07-11-2013) 16 - Nemanja Sovic, Þór Þ. (Þór Þ. - Njarðvík, 10-11-2013) 16 - Nigel Moore, Njarðvík (Njarðvík - Keflavík, 28-10-2013) 16 - Pavel Ermolinskij, KR (KR - Njarðvík, 14-11-2013)
Dominos-deild karla Mest lesið Enska augnablikið: Skellur þegar hann hrinti dómaranum Enski boltinn Heimi fannst Arnar byrja of bratt með Ísland Fótbolti Newcastle loks að fá leikmann Enski boltinn Sjáðu dramatísku sigurmörkin og Stjörnumenn skella Víkingum Íslenski boltinn Mun Jake Paul mæta Anthony Joshua í hringnum? Sport Crystal Palace tapaði áfrýjun og þarf að spila í Sambandsdeildinni Enski boltinn Halldór: Góð ákvörðun hjá þeim að hætta spila boltanum Íslenski boltinn Palace stefnir á að selja fyrirliðann fyrir gluggalok Enski boltinn Dagskráin í dag: Besta deild karla á sviðið Sport Uppgjörið: Valur - Breiðablik 2-1 | Dramatískt sigurmark Vals í uppbótartíma Íslenski boltinn Fleiri fréttir Þjóðverjar unnu Doncic lausa Slóvena Pólland missir NBA stjörnu fyrir Eurobasket Stelpurnar töpuðu þrátt fyrir frábæra byrjun Stockton segir að LeBron „hafa notað þyrlu til að komast á toppinn“ Serbi inn í teig hjá Stólunum: „Ég veit að áhorfendurnir elska körfubolta“ Stelpurnar spila um sjöunda sætið á Eurobasket „Þeir eiga allir skilið að fara í lokahópinn“ Stelpurnar Norðurlandameistarar og strákarnir fengu silfur Þýskaland lagði Slóvena í undirbúningi fyrir Eurobasket Celtics festa þjálfarann í sessi NBA stjarna borin út Litáen of stór biti fyrir íslensku stelpurnar Öruggar með besta árangur Íslands á EM frá upphafi Ákærður fyrir að hnupla treyju LeBron sem seldist seinna á nær hálfan milljarð Ísland í átta liða úrslit eftir ótrúlega endurkomu Dildó-faraldurinn heldur áfram í WNBA Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Stórskotasýning Sigtryggs dugði ekki til sigurs Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Grindavík fær leikstjórnanda frá Grikklandi Stórt tap á Ítalíu Ísland mátti þola stórt tap Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles Fékk vægt áfall: „Með fullt af missed calls“ Stjórnendur NBA reyna að sannfæra Real Madrid og fleiri forrík félög KR sækir ungan bakvörð „Sýna að maður eigi það skilið“ Segir að þeim besta í heimi sé skítsama Álftanes bætir Bandaríkjamanni við hópinn Sjá meira