Hin ávanabindandi sigurvíma Álfrún Pálsdóttir skrifar 21. maí 2013 10:00 Í sumar fagna ég því að heil átta ár eru síðan ég hóf minn feril sem knattspyrnuáhangandi. Ég er ein af þessum svokölluðu „antisportistum“ sem æfði hestaíþróttir og samkvæmisdans á yngri árum á meðan ég hræddist bolta. Hljóp á eftir honum fyrir kurteisissakir í leikfimi í grunnskóla en reyndi að forðast það eins og heitan eldinn að snerta boltann. Ég komst þó ekki hjá því að vita að fótbolti væri vinsæl íþrótt hér á landi. Faðir minn dró mig stundum á völlinn þar sem ég eyddi tímanum í dagdrauma uppi í stúku. Í einni ferðinni standa pulsurnar í Akraborginni upp úr. Hitt sem stendur upp úr var þegar allsber maður hljóp inn á Laugardalsvöllinn og stöðvaði leikinn. Mér fannst þetta stórmerkilegur atburður og hugsaði lengi eftir á hvað hefði orðið um aumingjans manninn eftir að öryggisverðirnir yfirbuguðu hann á grasflötinni. Þessi tiltölulega nýtilkomni áhugi minn á tuðrusparkinu kom mér á óvart því ég ætlaði ekki að láta glepjast þrátt fyrir þátttöku bóndans. Mætti fyrir kurteisissakir upp í stúku, með sólgleraugu og fylgdist meira með fólkinu í kring en leiknum sjálfum. Var í raun sama um úrslitin, eða lét sem mér væri það. Svo gerðist eitthvað. „Antisportistinn“ sem hafði alltaf tekið dansgólfið á Sirkus fram yfir knattspyrnustúkuna um helgar sá ljósið. Í dag hef ég setið í flestum stúkum landsins, veit hvar bestu stæðin er að finna og hvaða völlur er barnvænstur. Ég er nú að halda með fjórða liðinu á höfuðborgarsvæðinu og hef klappað fyrir tveimur fyrir utan landsteinana. Ég les meira að segja vefsíður tileinkaðar íþróttinni, ekki bara af skyldurækni. Loksins hef ég líka náð tökum á rangstöðureglunni. Hvern hefði grunað? En ég er líka búin að komast að því hvers vegna ég vildi sem minnst af íþróttinni vita í byrjun. Knattspyrna er einstaklega taugatrekkjandi leikur. Þunn lína milli hláturs og gráts. En eins ömurlegt og það er þegar þínu liði gengur illa þá er gleðin sem fylgir sigri frábær. Já, sigurvíman er ávanabindandi eins og aðrar vímur og gerir það að verkum að maður mætir ár eftir ár, með hjartað í buxunum til að klappa fyrir sínum mönnum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Álfrún Pálsdóttir Mest lesið Orð skipta máli Birgitta Þorsteinsdóttir Skoðun Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir Skoðun Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson Skoðun Það sem mamma og pabbi kenndu mér Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Ísland og ESB: Horft af brúnni Þorvaldur Gylfason Skoðun Innan ESB „mun Ísland stjórna fiskveiðum í Norður-Atlantshafi“ Óli Rúnar Ástþórsson Skoðun Hvers vegna erum við enn að reyna að binda hendur fólks? María Gunnarsdóttir Skoðun Íslenskir kjósendur eða evrópskir embættismenn? Ólafur Hannesson Skoðun Tafla á villigötum Gauti Eggertsson Skoðun Viðvörunarljós í evrópsku atvinnulífi Guðrún Hafsteinsdóttir Skoðun
Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson Skoðun
Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson Skoðun