Jakob á leið í hundrað þrista klúbbinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. ágúst 2013 06:30 Jakob Örn Sigurðarson. Kemst hann í 100 þrista klúbbinn? Fréttablaðið/valli
Íslenska körfuboltalandsliðið leikur í kvöld lokaleik sinn í sínum riðli í undankeppni EM 2015 þegar Rúmenar koma í Laugardalshöllina og hefst leikurinn klukkan 19.15. Liðið var hársbreidd frá því að vinna Búlgara á þriðjudagskvöldið en Búlgarar tryggðu sér þar sæti í umspilinu. Ísland og Rúmenía spila hinsvegar um annað sætið í riðlinum í kvöld sem verður mikilvægt hvað varðar styrkleikaröðun fyrir næstu undankeppni haustið 2014. Jakob Örn Sigurðarson, bakvörður og lykilmaður í íslenska landsliðinu, á möguleika á því að ná flottum tímamótum á fjölum Hallarinnar í kvöld. Jakob skoraði tvær þriggja stiga körfur á móti Búlgaríu á þriðjudagskvöldið og hefur nú sett niður 99 þrista með A-landsliðinu. Jakob á möguleika á því að verða tíundi landsliðsmaðurinn sem nær því að setja niður hundrað þriggja stiga körfur fyrir íslenska landsliðið en einn leikmaður liðsins í dag er þegar í 100-þrista klúbbnum. Logi Gunnarsson er í 6. sætinu með 138 þriggja stiga körfur. Jakob hefur skorað 1,5 þrist að meðaltali í leik í sínum 68 landsleikjum en hann hefur skorað nær helming þessara þriggja stiga karfa (47 af 99) eftir að Peter Öqvist tók við liðinu en Svíinn hefur einnig þjálfað Jakob hjá Sundsvall Dragons frá árinu 2009.
Dominos-deild karla Mest lesið Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport HM-leikmaður í glannakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti María lýsir erfiðri meðgöngu: „Þekki mig ekki í eigin líkama“ Fótbolti Hættir með landsliðinu Fótbolti Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Enski boltinn Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Björgvin Karl og liðsfélagar hans í þriðja sætinu eftir fyrsta dag Sport Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Haaland dýrastur í sögu Fantasy Enski boltinn Fleiri fréttir Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Sjá meira