Besta marka-ár Guðjóns Vals með landsliðinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. desember 2013 08:00 Guðjón Valur Sigurðsson. Mynd/Vilhelm
Guðjón Valur Sigurðsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í handbolta, náði að rjúfa hundrað marka múrinn á árinu þrátt fyrir að íslenska liðið spilaði aðeins þrettán leiki. Guðjón Valur missti ekki úr leik og skoraði yfir átta mörk að meðaltali sem skilaði honum yfir hundrað marka múrinn í áttunda sinn á fimmtán ára landsliðsferli hans. Guðjón Valur skoraði 41 mark í sex leikjum á HM á Spáni og varð þar sjöundi markahæstur þrátt fyrir að Ísland dytti út í sextán liða úrslitunum. Guðjón Valur skoraði 41 mark í fjórum síðustu leikjum Íslands í undankeppni EM þar sem liðið tryggði sér sæti á EM í Danmörku og varð um leið markahæsti leikmaður undankeppninnar. Guðjón Valur endaði síðan árið á því að skora 18 mörk í tveimur æfingaleikjum á móti Austurríki en með því komst hann yfir hundrað marka múrinn. Guðjón Valur skoraði 8,08 mörk að meðaltali í leik í landsleikjum ársins og er þetta langhæsta meðalskor hans á landsliðsári. Guðjón Valur er orðinn 34 ára en hefur sjaldan verið betri. Hans besta meðalskor fyrir þetta ár var þegar hann skoraði 7,4 mörk í leik árið 2009 en Guðjón Valur lék þá reyndar bara fimm leiki. Ábyrgðin hefur aukist eftir að hann tók við fyrirliðabandinu af Ólafi Stefánssyni og það er óhætt að segja að Guðjón Valur hafi svarað kallinu enda með 7,3 mörk að meðaltali í leik undanfarin tvö ár. Guðjón Valur og félagar í landsliðinu hittast um áramótin þar sem lokaundirbúningur liðsins hefst fyrir EM í Danmörku. Þar getur liðið vonandi áfram treyst á heimsklassaframlag frá járnmanninum í vinstra horninu.
EM 2014 karla Íslenski handboltinn Handbolti Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira