Ólafur fer frá Flensburg til Álaborgar 17. febrúar 2014 10:02 Ólafur Gústafsson er á leið frá Þýskalandi. Vísir/Getty
Ólafur Gústafsson, landsliðsmaður í handbolta, yfirgefur þýska liðið Flensburg í sumar og gengur í raðir Álaborgar í Danmörku. Frá þessu er greint á heimasíðu Flensburg en þar kemur fram að hann hafi skrifað undir þriggja ára samning við dönsku meistarana fyrir helgi. Ólafur, sem gekk í raðir Flensburg undir lok árs 2012, hefur lítið sem ekkert fengið að spila með liðinu að undanförnu. Hann hefur einnig glímt við meiðsli sem héldu honum frá keppni með Íslandi á EM í janúar. „Ég tel það rétt skref hjá mér að breyta lið og fara til Danmerkur. Álaborg er áhugavert félag. Ég hlakka til nýrrar áskorunar og er ánægður með hvernig málið var klárað,“ segir Ólafur Gústafsson. Álaborg stóð nokkuð óvænt uppi sem sigurvegari í dönsku úrvalsdeildinni í fyrra eftir sigur á stjörnum prýddu liði KIF Kolding í úrslitarimmu. Liðið er sem stendur í þriðja sæti deildarinnar með 36 stig, stigi á eftir Kolding og tveimur stigum á eftir toppliði Skjern þegar 23 umferðum er lokið af 26.
Handbolti Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Körfubolti Fleiri fréttir Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sjá meira