Læknirinn Hallgrímur Þ. Magnússon segir okkur hvað hann gerir þegar hann verður veikur og segir hann okkur frá einni reynslusögu þar sem hann fór í góða föstu sem læknaði hann á magnaðan hátt.

Jóhanna Vilhjálmsdóttir fjölmiðlakona segir okkur frá því hvernig hún losaði sig við lyf og lagaði húðvandamál með réttu mataræði.
Ritsjórinn Björk Eiðsdóttir fær ráðleggingar hjá Þorbjörgu vegna mikils vinnuálags og svefnvandamála sem því fylgja.
Og Solla Eiríks býr svo til dásamleg spínatbuff sem snilld er að frysta og eiga fyrir vikuna með æðislegri hvítlaukssósu.
Solla býr einnig til súper gott og fljótlegt morgunbúst fyrir Björku, en það er fljótlegt hollustustart fyrir vinnudaginn.
Morgunbúst
2 ½ dl frosin eða fersk bláber
½ banani, skorinn í bita
½ avókadó, skorið í bita
2 msk útbleytt chiafræ
1 tsk hveitigrasaduft
3 hylki asidophylus
½ - 1 tsk Mímir frá Jurtaapótekinu (má sleppa)
1 msk hörfræolía
5-6 dl möndlumjólk
Allt sett í blandara og blandað saman
Spínatbuff
50g spínat
200g soðnar/bakaðar kartöflur – hægt að nota sætar kartöflur
200g kjúklingabaunir
50-75g fetaostur – hægt að nota sojaost
½ tsk cumin duft
1 tsk karryduft
¼ - ½ tsk salt
¼ - ½ tsk reykt paprika
Blandið öllu saman í hrærivél eða matvinnsluvél. Mótið buffin með ískúluskeið og bakið í 200C ofni í 15-20 mín.
Sósan með spínatbuffinu
2 dl ab-mjólk eða grísk jógúrt
1 hvítlauksrif
1/4-1/2 agúrka, rifin og vökvinn kreistur úr henni
smá sjávarsalt
Öllu hrært saman í skál.
