Skálað fyrir heilögum Patreki 14. mars 2014 15:12 Haldið er upp á heilagan Patrek víða um heim með skrautlegum skrúðgöngum og mikilli gleði.
Dagur heilags Patreks, St. Patrick‘s day, verður haldinn hátíðlegur á mánudag. Á þeim degi gera Írar sér dagamun og halda veglega þjóðhátíð. Hátíðin er sömuleiðis viðamikil í Bandaríkjunum og í fleiri löndum þar sem margir burtfluttir Írar búa. Skrautlegar skrúðgöngur eru farnar í Dyflini, New York, Los Angeles og fleiri borgum, allt til heiðurs heilögum Patreki. Saga heilags Patreks er fróðleg. Hann fæddist á Bretlandi en var numinn brott af írskum sjóræningjum og haldið í ánauð í sex ár. Patrekur lærði til prests og ferðaðist víða sem trúboði, meðal annars var um tíma talið að hann hefði komið við á Patreksfirði en sú saga þykir ótrúverð. Hann er sagður vera ástæðan fyrir því að Írar halda upp á músasmárann eða þriggja laufa smára þar sem Heilagur Patrekur útskýrði fyrir írskum konungi og hirð hans hugmyndarfræðina á bakvið heilaga þrenningu. Heilagur Patrekur er verndardýrlingur Írlands og er hafður í hávegum þar í landi, sem og öðrum löndum. Barir hér á landi hafa einnig tekið upp þennan sið og margir koma á enska pöbba 17. mars og skála í ekta írskum, dökkum og freyðandi Guinnes bjór í tilefni dagsins.
Mest lesið Best að geta elt draumana saman Lífið Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Bíó og sjónvarp Guðni og gellurnar mættu í kokteilboð Lífið Ólga vegna brotthvarfs Sölku Sólar: „Þetta er vond ákvörðun“ Lífið Er Rothschild-ættin að sölsa undir sig allan heiminn? Lífið Laufey og Collab í eina sæng Lífið Stjörnulífið: Hilmir Snær og Vala Kristín kósí í Laugum Lífið Minnast Davíðs: Hugrakkur, hnyttinn og stór í sniðum Lífið Ástrós Trausta og Adam kveðja Fossvoginn Lífið Jóhanna Vigdís greindist með MS Lífið Fleiri fréttir Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira