Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Jamboree Entertainment 16. september 2026 08:26 Boney M. með Liz Mitchell í broddi fylkingar stígur á svið ásamt Herberti Guðmundssyni í Eldborg. Þessir jólatónleikar verða öðruvísi og lofa frábærri skemmtun þar sem tvær tónlistarstjörnur koma saman í Hörpu þann 19. desember. Fram koma hin goðsagnakennda diskó hljómsveit Boney M. ásamt upprunalegu söngkonunni, Liz Mitchell, með fullskipaðri hljómsveit, auk einnar ástsælustu söngraddar Íslands, Herbert Guðmundssonar.
Boney M. mótaði alþjóðlegu tónlistarsenuna á áttunda og níunda áratugnum, með sinni einstakri blöndu af diskó-, reggí- og popptónlist, og er hún á meðal farsælustu diskóhljómsveita sögunnar. Með yfir 150 milljónir seldar plötur, smelli sem hafa slegið í gegn um allan heim og hljóm sem hafði áhrif á heilu kynslóðirnar, lyfti hljómsveitin diskó tónlist á nýjar hæðir og varð samnefnari fyrir gleði og skemmtun. Í broddi fylkingar er heimsfræg rödd Boney M., Liz Mitchell, sem stígur á svið í Hörpu ásamt 12 manna hljómsveit og bakraddarsöngvurum. Með kröftugri söngrödd færir hún einstaka orku og ástríðu inn í klassísk lög eins og Rivers of Babylon, Daddy Cool, Rasputin, Ma Baker, Sunny, Hooray! Hooray! It's a Holi-Holiday og Mary’s Boy Child / Oh My Lord. „Við erum gríðarlega spennt fyrir því að fá Boney M í Hörpu yfir hátíðirnar, með upprunalegu söngkonuna Liz Mitchell í fararbroddi,“ segir James Cundall, framleiðandi og framkvæmdastjóri Jamboree Entertainment. „Grípandi og skemmtileg lög hljómsveitarinnar einkenndu heilt tímabil og munu án efa fá allan salinn til að syngja og dansa. Ásamt fullskipaðri hljómsveit mun þessi kraftmikli hópur töfra fram hinn eina sanna og smitandi Boney M-hljóm. Það verður mikið um skemmtun og algjört stuð, sem smellpassar fyrir jólagleðina," segir James Cundall. Tónleikarnir hefjast á innslagi frá einni lífseigustu rokkstjörnu Íslands, Herberti Guðmundssyni, sem kemur fram í fyrsta skipti í Eldborgarsal Hörpu ásamt fimm manna hljómsveit sinni sem er skipuð úrvals tónlistarmönnum. Eins og flestir Íslendingar vita er Herbert hæfileikaríkur og reynslumikill tónlistarmaður sem hefur með krafti sínum og sérstöku rödd heillað áheyrendur í hálfa öld. Þarna gefst tækifæri til að upplifa aftur þekkt lög með goðsögninni eins og Með stjörnunum, Can't Walk Away, Í þér býr það besta, Hollywood, Time, Svaraðu og I Follow You. Íslendingar ættu sannarlega að búa sig undir skemmtilega jólaveislu. Jólatónleikarnir með Boney M, undir forystu Liz Mitchell ásamt Herbert Guðmundssyni, verða haldnir aðeins eitt kvöld. Tónleikarnir fara fram í Eldborg í Hörpu, laugardaginn 19. desember kl. 20:00. Miðaverð er frá 6.990 kr. til 22.990 kr. og er miðasala þegar hafin á harpa.is og tix.is. Breska fyrirtækið Jamboree Entertainment stendur að baki tónleikunum, en það hefur staðið fyrir fjölda glæsilegra viðburða í Hörpu á árinu 2026. Þar má helst nefna sýningar á borð við The Legend of Springsteen, The Ultimate Eagles, The Definitive Rat Pack, Emilio Santoro as Elvis og Mania: The ABBA Tribute. Næst á dagskrá hjá fyrirtækinu er koma hins heimsþekkta óperusöngvara Sir Bryn Terfel til landsins þann 10. október og því næst sýningin Celebrating George Michael þann 21. nóvember. Árið 2027 verður svo ekki af lakara taginu, en von er á mörgum öðrum spennandi alþjóðlegum listamönnum til landsins á þeirra vegum.
Menning Tónlist Jólalög Jól Tónleikar á Íslandi Mest lesið Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Gagnrýni Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Menning Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Lífið Flippuðust og fáklæddust á Emmy-hátíðinni Tíska og hönnun Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Lífið Bob Mackie er látinn Lífið Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni 1991 var eitt stærsta ár tónlistarsögunnar Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Nýr sólarhringsstaður á Miklubraut: Sbarro, kaffi og verslun allan sólarhringinn Meira til baka með Takk í Bónus og Hagkaup Smellir George Michael lifna við á tónleikum í Hörpu og Hofi Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Beint flug til Portó Daría fagnar tíu árum – úr lítilli snyrtivöruverslun í lífsstílsverslun Hlaupa fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoninu Harpa býður heim á 15 ára afmæli á Menningarnótt Bylgjan fagnar 40 árum með stórveislu á Menningarnótt Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Golfmót FM957 Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi „Ísland, biðin er á enda!“ Loksins hægt að panta ilmvötn á Boozt Allt undir einu þaki í hjarta Hafnarfjarðar „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Afmælisbomba í Beautybox og verk Sögu Sig í pottinum Þurrsjampó eru ekki öll eins, svona velur þú réttu vöruna fyrir þitt hár Pylsur eins og þú hefur líklega aldrei grillað þær áður Frá jólamörkuðum Evrópu til ævintýra í Asíu og Afríku Grillaður Gaggalagú með leynisósu landsliðskokksins Sjá meira