Satya Nadella, forstjóri Microsoft, afhjúpaði forritasafnið Office fyrir spjaldtölvuna iPad. Office-pakkinn inniheldur slík gamalkunn forrit eins og Microsoft Word, Excel, og Powerpoint. Reuters segir frá.
Þetta skref sýnir að Microsoft viðurkennir að til þess að halda velli verði það að þjónusta fyrirtæki og einstaklinga á ferðinni hvar sem þau eru, sérstaklega á hreyfanlegum tækjum eins og snjallsímum og spjaldtölvum.
iPad spjaldtölvan er framleiðsluvara Apple en hingað til hefur Apple boðið upp á forritin Pages, Numbers og Keynote sem eru lík Office-safninu í notkun.
Forritið var gefið út á App Store Apple í dag. Frítt er að niðurhala forritinu, opna og sýna gögn, en til þess að skapa eða breyta gögnum þarf að vera í Office 365 áskrift. Kostar sú áskrift tæpa 100 bandaríkjadali eða 11 þúsund krónur árlega fyrir einstaklinga en um það bil 60 dali eða 6800 krónur fyrir fyrirtæki.
Microsoft gefur út Office á iPad
Karl Ólafur Hallbjörnsson skrifar

Mest lesið

Óttast að háir vextir sogi sparnaðinn til Tenerife
Viðskipti innlent

Ráku framkvæmdastjórann og komust svo að rafmyntagreftrinum
Viðskipti innlent


Himinlifandi og ekki hugsi yfir litlum hlut fagfjárfesta
Viðskipti innlent


Gömlu höfuðstöðvar Icelandair verða hjúkrunarheimili
Viðskipti innlent


Ríflega þrjátíu þúsund einstaklingar kaupa hlut ríkisins
Viðskipti innlent


Reka forstjóra danska lyfjarisans sem malar gull á Ozempic
Viðskipti erlent