Lífið

Svíarnir hrifnir af Pollapönki

Álfrún Pálsdóttir skrifar
Svíarnir eru hrifnir af Pollapönki en eru samt efins um að þeir fari alla leið í Eurovision.
Svíarnir eru hrifnir af Pollapönki en eru samt efins um að þeir fari alla leið í Eurovision.
Eurovision spekingar sænska ríkissjónvarpsins, SVT, eru hrifnir af framlagi Íslands í Eurovision.

Sérstakur þáttur sjónvarpsins, Inför Eurovision, var sýndur í vikunni þar sem þau Malin Olsson, Christer Björkman, Kitty Störby Jutbring og Rennie Mirro fóru yfir annan helming keppenda í söngvakeppninni frægu.

Öll voru þau sammála um að lagið Engir fordómar með  Pollapönki væri ferskt innslag inn í keppnina. Þau lofsömuðu boðskap lagsins og marglitaða búninga sveitarinnar.

„Mestu máli skiptir að þeir eru að hafa gaman að þessu og koma greinilega inn í keppnina með engar væntingar," sagði Björkman, sem er einn helsti Eurovision-spekingur Svía.

Mirre, sænskur leikari og dansari, var þó óviss um að lagið kæmist alla leið í keppninni.

Einnig kom fram að Eurovision-keppnin væri hálfgerð þjóðhátíð á Íslandi sem kom þeim öllum skemmtilega á óvart.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.