Tiger ekki með á Masters í fyrsta skipti í 20 ár Tómas Þór Þórðarson skrifar 1. apríl 2014 16:12 Tiger Woods er meiddur. Vísir/Getty
Tiger Woods, efsti kylfingur heimslistans, tilkynnti það á Twitter-síðu sinni nú rétt í þessu að hann verður ekki með á Masters-mótinu sem hefst á Agusta-vellinum í Georgíuríki í Bandaríkjunum í næstu viku. Tiger fór í aðgerð vegna bakmeiðsla í byrjun vikunnar en klemmd taug hefur angrað hann í marga mánuði. Hann verður ekki í standi þegar mótið hefst á fimmtudaginn 10. apríl. Þetta er í fyrsta skiptið í 20 ár sem Tiger verður ekki með á The Masters sem er fyrsta risamót hvers árs. Hann hefur unnið mótið fjórum sinnum, síðast árið 2005. Þessi magnaði kylfingur fær því ekki tækifæri til að bæta 15. risatitlinum í safnið en honum hefur gengið illa að landa risatitlum síðan sá síðasti kom í hús á opna bandaríska meistaramótinu árið 2008. Tiger á einnig í hættu að missa efsta sæti heimslistans en Ástralinn Adam Scott er nú aðeins tíu stigum á eftir honum. Tiger hefur verið samtals í 677 vikur á toppi heimslistans.Sad to say I’m missing the Masters. Thanks to the fans for so many kind wishes. https://t.co/Ofbre9VHEL — Tiger Woods (@TigerWoods) April 1, 2014
Golf Mest lesið Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Enski boltinn Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Vann í Viltu vinna milljón og fær nú að mæta Man. Utd Fótbolti Emin sigraði með rothöggi og er enn taplaus Sport Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Man. Utd og lærisveinar Eiðs þurfa að svara fyrir sig Sport „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Enski boltinn Sjáðu mörkin í rosalegum endurkomusigri Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Sjá meira