Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Sindri Sverrisson skrifar 31. október 2026 21:59 Zion Suzuki missti boltann eftir hornspyrnu, rétt inn fyrir marklínuna. Getty/Carl Recine Suzuki var þó ekki sá eini sem gerði mistök í kvöld. Villa-menn fengu vítaspyrnu snemma leiks þegar boltinn fór í hönd Norðmannsins Sander Berge en John McGinn þrumaði boltanum í þverslá úr spyrnunni. Á 39. mínútu komst Villa þó yfir þegar hinn sjóðheiti Nicolas Jackson fékk boltann frá Johan Manzambi í skyndisókn og skoraði, þrátt fyrir að sækja einn gegn tveimur varnarmönnum í teignum. Sjálfsmark Suzuki kom svo á 64. mínútu þegar hann ætlaði að grípa hornspyrnu en missti boltann rétt inn fyrir marklínuna. Villa-menn voru nær því að skora sigurmark en það kom ekki og eftir tvo góða sigurleiki í röð urðu þeir að sætta sig við jafntefli. Villa hefur þó leikið fimm leiki í röð án taps og er með 12 stig í 9. sæti, jafnmörg og Tottenham og Bournemouth í næstu sætum fyrir ofan. Fulham er með níu stig í 15. sæti. Enski boltinn Aston Villa FC Fulham FC