Lokabaráttan um síðasta sætið í úrslitakeppninni er í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. apríl 2014 14:30 Frá leik Fram og FH í vetur. Vísir/Andri Marinó
Lokaumferð Olís-deildar karla í handbolta fer fram í kvöld en þar munu þrjú lið berjast um fjórða og síðasta sætið inn í úrslitakeppnina. Haukar hafa tryggt sér deildarmeistaratitilinn og Eyjamenn fá heimavallarrétt í undanúrslitunum. Valsmenn eru öryggir með sæti í úrslitakeppnina en gætu dottið niður í fjórða sætið. Framarar standa best að vígi af þeim þremur liðum sem eiga möguleika á því að fylgja Haukum, ÍBV og Val í úrslitakeppnina. Fram er með eins stigs forskot á FH og tveggja stiga forskot á ÍR. ÍR-ingar eiga enn möguleika á því að komast í úrslitakeppnina þar sem þeir hafa unnið Fram tvisvar sinnum í þremur leikjum liðanna í vetur. Fram tryggir sér sæti í úrslitakeppninni með sigri á Val og munu um leið taka þriðja sætið af Valsmönnum en liðin mætast klukkan 19.30 í Vodafone höllinni að Hlíðarenda. FH þarf að vinna ÍR og treysta á það að Fram tapi stigum á móti Val. FH er líkt og ÍR með betri innbyrðisstöðu á móti Fram. ÍR-ingar tryggja sér sæti í úrslitakeppninni með sigri á FH á heimavelli á sama tíma og Valsmenn vinna Fram á sínum heimavelli. Það getur því margt gerst í kvöld og miðað við jafna og spennandi leiki í vetur þá eiga öll þrjú liðin, Fram, FH og ÍR, raunhæfa möguleika á því að verða með í úrslitakeppninni í ár.Leikir kvöldsins í Olís-deild karla: Haukar - ÍBV (19.30, Schenkerhöllin) Valur - Fram (19.30, Vodafone höllin) ÍR - FH (19.30, Austurberg) Akureyri - HK (19.30, Höllin Akureyri)
Olís-deild karla Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira