Ragnar samdi við Sundsvall Dragons Tómas Þór Þórðarson skrifar 28. apríl 2014 22:49 Ragnar Nathanaelsson er 218cm hár miðherji. Vísir/Jón Björn
Ragnar Nathanaelsson, hinn 218cm hávaxni miðherji Þórs Þorlákshafnar og íslenska landsliðsins í körfubolta, er orðinn atvinnumaður. Ragnar opinberaði það í Sportþættinum Mánudagskvöld á útvarpi Suðurlands í kvöld að hann væri búinn að skrifa undir samning við sænska úrvalsdeildarliðið Sundsvall Dragons sem Íslendingar þekkja vel. Með Sundsvall leika landsliðsmennirnir Hlynur Bæringsson, Jakob Örn Sigurðarson og Ægir Þór Steinarsson en þjálfari liðsins var Peter Öqvist, fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands. Hann hætti eftir tímabilið. „Þetta er draumurinn, tala nú ekki um að fá að taka fyrstu skrefin í atvinnumennskunni með Hlyn Bæringsson og Jakob Örn Sigurðarson sér við hlið,“ segir Ragnar í viðtali við karfan.is í kvöld. Ragnar átti frábært tímabil með Þór í Dominos-deildinni í vetur en hann skoraði að meðaltali 15,4 stig í leik í deildarkeppninni og tók 12,9 fráköst. Þórsliðið komst í úrslitakeppnina en tapaði fyrir Grindavík, 3-1, þar sem Ragnar hélt áfram að fara á kostum og skilaði að meðaltali 14,25 stigum og 14,5 fráköstum í leik. Sundsvall Dragons hafnaði í fjórða sæti sænsku úrvalsdeildarinnar í ár en tapaði, 3-1, í átta liða úrslitum.
Dominos-deild karla Mest lesið Heimir og Dean sendir í sturtu eftir læti á hliðarlínunni Íslenski boltinn „Óreyndir dómarar sem falla í þessa gryfju“ Íslenski boltinn Bale af golfvellinum og á skjáinn Enski boltinn Hákon Rafn gæti fengið sénsinn Enski boltinn „Leyfa því að koma og nýta það á góðan hátt sem orku“ Íslenski boltinn „Var farinn að krampa upp í öllum vöðvum líkamans“ Íslenski boltinn Uppgjörið: KR - Afturelding 2-1 | Mosfellingar í fallsæti eftir tap í Vesturbænum Íslenski boltinn Donnarumma skilinn eftir heima Enski boltinn Uppgjörið: FH - ÍA 3-2 | Ótrúleg endurkoma heimamanna í Kaplakrika Íslenski boltinn Tap setur Ísland í erfiða stöðu Handbolti Fleiri fréttir Með fyrsta þrjátíu tuttugu leikinn í sögu WNBA Ótryggður Giannis tekur ekki þátt í undirbúningi Grikklands Þjóðverjar unnu Doncic lausa Slóvena Pólland missir NBA stjörnu fyrir Eurobasket Stelpurnar töpuðu þrátt fyrir frábæra byrjun Stockton segir að LeBron „hafa notað þyrlu til að komast á toppinn“ Serbi inn í teig hjá Stólunum: „Ég veit að áhorfendurnir elska körfubolta“ Stelpurnar spila um sjöunda sætið á Eurobasket „Þeir eiga allir skilið að fara í lokahópinn“ Stelpurnar Norðurlandameistarar og strákarnir fengu silfur Þýskaland lagði Slóvena í undirbúningi fyrir Eurobasket Celtics festa þjálfarann í sessi NBA stjarna borin út Litáen of stór biti fyrir íslensku stelpurnar Öruggar með besta árangur Íslands á EM frá upphafi Ákærður fyrir að hnupla treyju LeBron sem seldist seinna á nær hálfan milljarð Ísland í átta liða úrslit eftir ótrúlega endurkomu Dildó-faraldurinn heldur áfram í WNBA Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Stórskotasýning Sigtryggs dugði ekki til sigurs Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Grindavík fær leikstjórnanda frá Grikklandi Stórt tap á Ítalíu Ísland mátti þola stórt tap Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles Fékk vægt áfall: „Með fullt af missed calls“ Stjórnendur NBA reyna að sannfæra Real Madrid og fleiri forrík félög KR sækir ungan bakvörð „Sýna að maður eigi það skilið“ Sjá meira
Uppgjörið: KR - Afturelding 2-1 | Mosfellingar í fallsæti eftir tap í Vesturbænum Íslenski boltinn
Uppgjörið: KR - Afturelding 2-1 | Mosfellingar í fallsæti eftir tap í Vesturbænum Íslenski boltinn