Lífið

Tæknileg mistök á æfingu Pollapönks

Bjarki Ármannsson skrifar
Pollapönk keppir að sjálfsögðu til sigurs í kvöld.
Pollapönk keppir að sjálfsögðu til sigurs í kvöld. Mynd/Eurovision
Margt var að hljóðinu í atriði Pollapönks á dómararennsli í gærkvöldi. Hefur íslenski hópurinn formlega kvartað undan þessu en um tæknileg mistök aðstandenda keppninnar var að ræða.

Rúv greindi fyrst frá þessu. Dómarar greiddu atkvæði sín í gær en athugasemd íslenska hópsins var send áfram á allar dómnefndir. Þótti hljóðblöndun ekki nógu góð og hljóðnemi Heiðars, aðalsöngvara sveitarinnar, á að hafa dottið út nokkrum sinnum á meðan atriðinu stóð. 

Pollapönkarar stíga á svið um hálfáttaleytið í kvöld, fjórðu í röðinni. 


Tengdar fréttir

Pollrólegir baksviðs

Generalprufa fyrir fyrra undanúrslitakvöld Eurovision var í gærkvöldi.

"Ég var byrjaður að brynja mig“

Arnar Gíslason, eða sá bleiki, segir meðlimi Pollapönks vera ótrúlega ánægða með að komast í úrslit Eurovision






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.