Fámennasta verkfall í sögu Noregs Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 7. maí 2014 11:01 MYND/Norwegian
Einn flugþjónn fór í verkfall á miðnætti þegar ekki tókst að ná lendingu í deilu Norwegian flugfélagsins við norskar og danskar áhafnir. Þetta er fyrsta verkfallið í sögu félagsins og það fámennasta í sögu Noregs. Það var flugþjónninn René-Charles Gustavsen sem lagði niður störf. Vefsíðan Túristi greinir frá þessu.Innan nokkurra daga er þó reiknað með að um tólf hundruð kollegar flugþjónsins í Danmörku og Noregi muni einnig fara í verkfall. vegna mismunandi reglna um vinnustöðvanir í löndunum tveimur er ekki hægt að samræma aðgerðir betur. Gustavsen situr í stjórn stéttarfélagsins og sagði hann í samtali við Aftenposten að það hafi verið eðlilegast að kjörinn fulltrúi starfsmanna riði á vaðið svo hægt væri að hefja aðgerðirnar. Flugþjónninn ætlar hins vegar ekki að standa verkfallsvakt næstu daga heldur reyna að finna lausn á deilunni.
Mest lesið Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Viðskipti innlent Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira