Nokkur fyrirtæki segjast geta lofað að stýra því hvað birtist um fólk á internetinu, hvort sem það er að fjarlægja óheppilegt efni eða slæma fréttaumfjöllun - fyrir nokkurt verð.
„Við getum fjarlægt hluti sem ættu ekki að finnast á netinu,“ sagði Chris Dinota, forstjóri og stofnandi eins slíks fyrirtækis Solvera Group í samtali við CNN.
Kostnaðurinn er á milli 50 til 300 þúsund dollara, sem jafngildir tæplega sex til 34 fjórum milljónum króna, eftir því hvert verkefnið er auk mánaðargjalds.
Solvera segir þeirra þjónustu betri en þá sem fyrir er sem færir ákveðna umfjöllun neðar á leitarsíðum þar sem þeirra þjónusta getur fjarlægt neikvæða umfjöllun alveg og þannig stjórnað leitarniðurstöðum.
Fyrirtæki Dinota framkvæmir kannanir á bakgrunni viðskiptavina og starfar ekki með þeim sem vilja láta fjarlægja umfjöllun sem er rétt.
Þjónustan fjarlægir umfjöllun af leitarvélum eins og Google, Yahoo og Bing.
„Mikið af viðskiptavinum okkar hafa verið kúgaðir og leita til okkar í algjörri neyð,“ sagði Dinota.
Hægt að kaupa hvað birtist um mann á netinu
Fanney Birna Jónsdóttir skrifar

Mest lesið

Gefast upp á miðbænum: „Það er hringur eftir hring, engin bílastæði“
Viðskipti innlent

Rapyd sé íslenskt fyrirtæki með kennitölu frá 1983
Viðskipti innlent


Rökrétt að lækka lyfjaverð í Bandaríkjunum
Viðskipti innlent

Þurfi að líta ofar í tekjustigann í næstu kjarasamningum
Viðskipti innlent

Hefja viðskipti með bréf í Alvotech í Stokkhólmi
Viðskipti innlent

Ráku framkvæmdastjórann og komust svo að rafmyntagreftrinum
Viðskipti innlent


Óttast að háir vextir sogi sparnaðinn til Tenerife
Viðskipti innlent
