Sætar stelpur kúka líka Anna Tara skrifar 25. maí 2014 20:09
Hljómsveitin Hljómsveitt var að gefa frá sér nýtt lag og myndband, lagið heitir OOooog ég kúka… Hljómsveitin samanstendur af systrunum Katrínu Helgu og Önnu Töru Andrésardætrum. Myndbandið er einstaklega vandað og greinilegt að það hefur verið lögð mikil vinna í það. Þær segja hugmyndina að myndbandinu hafa komið til frá æðra þroskastigi. Þær hófust strax handa og það tók þær svolítinn tíma að hitta akkúrat á það „lúkk“ sem þær voru að sækjast eftir. Það tók um sex vikur að taka myndbandið upp og klippa það. Pródúser er Damien Rice, leikstjóri er Baltasar Kormákur og Versace hannaði búningana. Aðspurðar að því hvert þær hafi sótt innblásturinn segja þær hann hafa sprett af eigin reynslu og að þær bindi miklar væntingar við þetta lag. Þær segja næsta skref vera að þýða lagið yfir á ensku og reyna að meika það í útlöndum.
Harmageddon Video Skroll Harmageddon Mest lesið Óvinir internetsins Harmageddon Þorgerður Katrín segir Íslendinga verða að hætta tala niður listir og menningu Harmageddon Segir láglaunafólk geta bætt kjör sín með því að flytja út úr borginni Harmageddon Vill að forystan axli ábyrgð og segi af sér Harmageddon Nýtt myndband með Leoncie og Shades of Reykjavík Harmageddon Undrast afskiptaleysi Blaðamannafélagsins Harmageddon Myndband: Vök með nýtt lag á Nordic Radio Playlist Bar Harmageddon Sannleikurinn: "En á björtu nótunum þá hefst 30 ára afmælisdagskrá Rásar 2 á morgun“ Harmageddon Hver drap Kurt Cobain? Sýnishorn úr nýrri mynd Harmageddon Hvetur fólk til að minnast Hauks með því að mæta í héraðsdóm Harmageddon