Styttist í sex ára afmæli haftanna Haraldur Guðmundsson skrifar 9. júlí 2014 11:00 Viðskiptaráð gerir ráð fyrir að útflutningstekjur ársins 2013 hefðu verið um 80 milljörðum króna hærri án hafta en raunin varð. Vísir/Halldór
Afnám gjaldeyrishafta gæti leitt til veikingar krónunnar með tilheyrandi verðhækkunum hér innanlands og aukinni verðbólgu. Þrátt fyrir það telja Samtök atvinnulífsins (SA) að sú efnahagslega áhætta sem fylgir höftunum, og mun líklega skapast, sé meiri en sú sem gæti falist í afnámi þeirra. Þetta kom fram í grein Þorsteins Víglundssonar, framkvæmdastjóra SA, í Fréttablaðinu í gær. Þar rekur Þorsteinn verkefnið við afnám haftanna sem hann segir það mikilvægasta sem íslensk stjórnvöld standi frammi fyrir í dag. Þorsteinn segir aðstæður til afnáms mjög hagstæðar þar sem efnahagslífið sé í ágætu jafnvægi. „Lykilforsenda þess að hægt verði að koma í veg fyrir ofhitnun hagkerfisins er hratt afnám fjármagnshafta. Efnahagsleg áhætta afnáms hafta er mun minni en hættan sem fylgir enn einni rússíbanareið íslensks efnahagslífs með kunnuglegri kollsteypu í lok ferðar,“ segir Þorsteinn. Höftunum var komið á í nóvember 2008 eftir að landið hafði orðið fyrir barðinu á bankakreppu. Gengi krónunnar hafði þá lækkað og hætta á stórfelldu útstreymi fjármagns skapast. Það hefði getað valdið enn meiri gengislækkun og verðbólgu og því ákvað Seðlabankinn að hefta tímabundið útflæði gjaldeyrisins. Upphaflega áttu höftin að falla úr gildi haustið 2010. Afnám þeirra hefur dregist og vegur þar þyngst töf við uppgjör þrotabúa föllnu bankanna, eins og kemur fram í nýrri Skoðun Viðskiptaráðs Íslands.Á þeim rúmu fimm og hálfu ári sem liðin eru hefur ítrekað verið bent á þann efnahagslega kostnað sem höftunum fylgir. Viðskiptaráð hefur til dæmis áætlað að þau hafi kostað íslensk fyrirtæki um 80 milljarða króna í útflutningstekjur á síðasta ári. Höftin eru einnig sögð draga úr nýliðun og vexti íslenskra fyrirtækja og leiða til þess að sprotafyrirtæki færi starfsemi sína úr landi. Höftunum hefur því oft verið líkt við girðingu sem erlendir fjárfestar vilji ekki festast innan með fjármuni sína. Þorsteinn segir í grein sinni að óttinn við gengislækkun og meðfylgjandi verðbólgu sé líklegasta skýringin á „aðgerðaleysi stjórnvalda“ þegar komi að afnámi haftanna. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur að undanförnu svarað spurningum um afnám haftanna á þann veg að þau verði jafnvel afnumin í ár. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í síðasta mánuði sagði hann stjórnvöld hafa nýtt tímann vel til að kortleggja vandann. „Ég er með væntingar um að það verði stórir áfangar stignir á þessu ári,“ sagði Bjarni.Björn Brynjúlfur BjörnssonGæti skapað sama vanda og árið 2008 Björn Brynjúlfur Björnsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands, segir ráðið sammála Samtökum atvinnulífsins um mikilvægi þess að höftin verði afnumin. Hann segir áhættuna við afnám gjaldeyrishafta fyrst og fremst tengjast mögulegri veikingu krónunnar. „Ef þessi veiking verður mikil þá getur hún skapað sama vanda og myndaðist hérna árið 2008. Þá urðu einstaklingar og fyrirtæki sem voru með verð- eða gengistryggð lán fyrir búsifjum og starfsemi margra fyrirtækja raskaðist. Það er hægt að standa að afnámi án þess að þetta verði raunin með því að takmarka þessa áhættu. Það er annars vegar hægt að halda útboð á erlendum gjaldeyri þar sem magnið er takmarkað. Hins vegar væri hægt að hafa skatt á fjármagnsútflæði sem færi síðan smám saman lækkandi með tímanum. Því er hægt að takmarka gengisveikingaráhættuna ef staðið er að afnáminu með skynsamlegum hætti,“ segir Björn.Regína BjarnadóttirSeðlabankinn ágætlega í stakk búinn „Ein helsta áhættan væri meðal annars þrýstingur á krónuna og Seðlabankinn þyrfti þá að nota hluta af gjaldeyrisforðanum til að sporna gegn falli hennar,“ segir Regína Bjarnadóttir, forstöðumaður Greiningardeildar Arion banka, spurð um þá efnahagslegu áhættu sem gæti falist í afnámi haftanna. „En ég tel að bankinn sé ágætlega í stakk búinn til að takast á við þrýsting á krónuna. Við erum á góðum stað, með góðan afgang af viðskiptajöfnuði, hallalaus fjárlög og aukningu í innstreymi ferðamanna. Þannig að það virðist vera góður tímapunktur fyrir okkur til takast á við þær áhættur sem skapast við að aflétta höftunum,“ segir Regína. Hún bendir á að höftunum yrði aldrei aflétt eins og hendi væri veifað. „Það yrði alltaf gert varfærnislega og Seðlabankinn hefur keypt mikið af gjaldeyri á síðastliðnum tólf mánuðum.“
Mest lesið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Sjá meira