Jón, Thelma og Kolbrún settu öll Íslandsmet í úrslitum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. ágúst 2014 17:26 Jón Margeir Sverrisson. Vísir/Stefán
Sex Íslandsmet voru sett á þriðja keppnisdegi á Evrópumeistaramóti fatlaðra í sundi sem fram fer þessa dagana í Eindhoven í Hollandi. Þrír af fjórum sundmönnum Íslands tóku þátt í úrslitum í dag og settu þeir allir ný Íslandsmet í sínum greinum.Thelma Björg Björnsdóttir úr ÍFR, reið á vaðið í 50 metra skriðsundi í flokki S6 en þar varð Thlema sjötta á 39,49 sekúndum sem er bæting á Íslandsmetinu sem hún setti í undanrásum í morgun (40,32 sekúndur). Næstur á svið var Jón Margeir Sverrisson úr Fjölni, í 100m bringusundi S14 karla en Jón hafnaði í 4. sæti á 1:13,81 mínútum sem er nýtt Íslandsmet í greininni. Eldra met Jóns var 1:13,91 mín. og því bæting upp á 10 sekúndubrot.Kolbrún Alda Stefánsdóttir úr Firði/SH, hafnaði í sjötta sæti í 100m bringusundi S14 kvenna á tímanum 1:24,14 mínútur sem er stórbæting á Íslandsmetinu sem hún setti í undanrásum í morgun en þá synti Kolbrún á tímanum 1:25,24 mínútur. Millitími Kolbrúnar var einnig Íslandsmet í 50 metra bringusundi, 39,23 sekúndur. Spánverjinn Alonso Morales setti nýtt heimsmet í greininni áðan þegar hún kom í bakkann á 1:15,83 mínútum. Á morgun er Thelma Björg ein íslenskra keppenda sem fer í laugina í Eindhoven þegar hún keppir í 200 metra fjórsundi S6.
Sund Tengdar fréttir Thelma komin í úrslit | Setti nýtt Íslandsmet Thelma Björg Björnsdóttir, ÍFR, er komin í úrslit í 50m skriðsundi á Evrópumeistaramóti fatlaðra í sundi sem haldið er í Eindhoven í Hollandi. 6. ágúst 2014 07:51 Kolbrún og Jón Margeir í úrslit | Kolbrún setti nýtt Íslandsmet Kolbrún Alda Stefánsdóttir, Firði/SH, komst í úrslit í 100m bringusundi, flokki S14, á Evrópumeistaramóti fatlaðra í sundi sem fer fram í Eindhoven, Hollandi. 6. ágúst 2014 08:31 Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Brentford tók Tottenham í karphúsið Enski boltinn Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos Fótbolti Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Handbolti Fleiri fréttir Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos De Bruyne gerði gæfumuninn gegn Mikael Agli og félögum Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Hinrik kominn á blað með nýja liðinu og okkar menn í Tyrklandi fögnuðu sigrum Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Brentford tók Tottenham í karphúsið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Ísfirðingar geta andað léttar Andri heldur áfram að skora fyrir Blackburn Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin Stefán Teitur með tvennu í þægilegum bikarsigri Norris náði ráspólnum aftur Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Russell vann sprettinn í þriðja sinn Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Messi sektaður fyrir að slá andstæðing „Auðvitað var auka hjartsláttur“ Sjá meira
Thelma komin í úrslit | Setti nýtt Íslandsmet Thelma Björg Björnsdóttir, ÍFR, er komin í úrslit í 50m skriðsundi á Evrópumeistaramóti fatlaðra í sundi sem haldið er í Eindhoven í Hollandi. 6. ágúst 2014 07:51
Kolbrún og Jón Margeir í úrslit | Kolbrún setti nýtt Íslandsmet Kolbrún Alda Stefánsdóttir, Firði/SH, komst í úrslit í 100m bringusundi, flokki S14, á Evrópumeistaramóti fatlaðra í sundi sem fer fram í Eindhoven, Hollandi. 6. ágúst 2014 08:31