Lífið

„Tak hans var svo þétt að ég gat ekki andað eða talað“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Sarah og Matthew.
Sarah og Matthew. vísir/getty
Modern Family-leikkonan Sarah Hyland hefur fengið nálgunarbann á fyrrverandi kærasta sinn, Matthew Prokop, samkvæmt vefsíðunni TMZ.

Sarah og Matthew voru saman í fimm ár áður en þau hættu saman í ágúst á þessu ári. Sarah heldur því fram að hann hafi tekið sig hálstaki og verið mjög ofbeldisfullur þegar þau voru saman.

TMZ er með gögn undir höndum og í þeim kemur fram að Sarah segi að Matthew hafi einu sinni ýtt henni upp að bíl þegar þau voru að rífast, hellt yfir hana óhróðri, kallað hana kuntu og tekið hana hálstaki.

„Tak hans var svo þétt að ég gat ekki andað eða talað. Ég var hrædd og hrædd um líf mitt,“ er haft eftir Söruh í gögnunum.

Sarah leitaði einnig hjálpar til Julie Bowen sem leikur móður hennar í sjónvarpsþáttunum Modern Family. Hún bað Julie um að koma heim til sín til að reyna að binda enda á ástarsambandið á friðsælan hátt. Þá hafi Matthew hins vegar hlaupið út í garð og byrjað að öskra. Honum er einnig gefið að sök að hafa hent kveikjara í Söruh og hótað að kveikja í húsinu.

Samkvæmt gögnunum hótaði Matthew Söruh margoft eftir sambandsslitin í ágúst. Þá hótaði hann einnig að taka eigið líf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.