Heilsa

Grænn og dásamlegur morgunsafi

Ragnheiður Guðmundsdóttir skrifar
visir/getty

Hollur og bragðmikill safi sem er fullur af frábærum jurtum sem gera okkur gott. Næringarríkur og hreinsandi um leið, frábær í morgunsárið til þess að koma sér í gang.

Uppskrift:

Fersk steinselja

Ferskur kóríander

Fersk myntulauf

1-2 epli

1/2 sítróna

1/2 bolli vatn

Skrælið sítrónuna og setjið allt hráefni í safapressu. Setjið um það bil eina lúku af hverri jurt. Bætið vatni út í og hrærið saman. Gott er að bæta við klökum í lokin og drekka með röri.

Njótið


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.