Citroën Cactus 2L er sparigrís Finnur Thorlacius skrifar 10. október 2014 14:45 Citroën Cactus 2L.
Einn af þeim bílum sem vakið hefur hvað mesta athygli á bílasýningunni í París sem hófst í síðustu viku er þessi sparigrís frá Citroën. Hann heitir Citroën Cactus 2L og vitnar endi nafnsins í eyðslu bílsins en hann eyðir aðeins 2 lítrum á hverja hundrað kílómetra. Það var ekki bara lág eyðsla bílsins sem vakti athygli heldur einnig frumleg og djörf hönnun hans. Þessi bíll er á stærð við Ford Focus, en á einna helst að keppa við bíla eins og Nissan Juke og Renault Captur um hylli kaupenda, enda er þetta smár jepplingur. Drifrás þessa nýja bíls samanstendur af þriggja strokka bensínvél og sérstöku Hybrid Air tvinnkerfi. Stilla má hvort eingöngu er notast við brunavélina, eingöngu við Hybrid Air kerfið, eða bæði í einu. Bíllinn er einstaklega léttur, eða aðeins 950 kíló og á það ekki síst þátt í lágri eyðslu bílsins , sem aðeins er 2 lítrar.
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent