Frábær fyrri hálfleikur dugði Þórsurum í sigri á Keflavík Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. október 2014 21:04 Keflvíkingarnir Will Graves og Damon Johnson í leiknum í kvöld. Vísir/Davíð Þór
Þórsarar úr Þorlákshöfn urðu fyrstir til að vinna Keflvíkinga í Dominos-deild karla í körfubolta í vetur þegar Þór vann fimm stiga sigur, 80-75, í leik liðanna í Icelandic Glacial höllinni í Þorlákshöfn í kvöld. Keflvíkingar voru búnir að vinna tvo fyrstu leiki sína en Þórsarar sýndu tennurnar í kvöld og hafa nú jafnmörg stig og keflavíkurliðið eftir þrjár fyrstu umferðirnar. Vincent Sanford skoraði 23 stig fyrir Þórsliðið, Grétar Ingi Erlendsson skoraði 14 stig, Tómas Heiðar Tómasson var með 13 stig og Emil Karel Einarsson skoraði 11 stig. Will Graves skoraði 25 stig fyrir Keflavík og Damon Johnson var með 20 stig, 10 fráköst og 4 stoðsendingar. Guðmundur Jónsson skoraði 12 stig. Damon skoraði 16 af 20 stigum sínum í seinni hálfleiknum. Þórsarar gáfu tóninn strax í fyrsta leikhlutanum sem þeir unnu 25-15 og Þórsliðið var síðan komið 18 stigum yfir í hálfleik, 43-25, en Þorlákshafnarmenn hittu meðal annars úr 7 af 9 (78 prósent) þriggja stiga skota sinna í fyrri hálfleiknum. Tómas Heiðar Tómasson hitti meðal annars úr öllum sínum þremur og var kominn með 11 stig í fyrri hálfleiknum. Damon Johnson skoraði 9 stig í þriðja leikhlutanum sem Keflavíkurliðið vann 28-17 en Keflvíkingar komu sér með því aftur inn í leikinn enda munurinn orðin aðeins sjö stig, 60-53. Keflvíkingar settu mikla spennu í leikinn í lokaleikhlutanum og náðu muninum niður í eitt stig, 74-73, en Þórsarar héldu haus og tókst að landa mikilvægum sigri.Þór Þ.-Keflavík 80-75 (25-15, 18-10, 17-28, 20-22)Þór Þ.: Vincent Sanford 23/8 fráköst, Grétar Ingi Erlendsson 14, Tómas Heiðar Tómasson 13/4 fráköst, Emil Karel Einarsson 11, Baldur Þór Ragnarsson 9, Nemanja Sovic 6, Oddur Ólafsson 4/8 fráköst.Keflavík: William Thomas Graves VI 25/9 fráköst, Damon Johnson 20/10 fráköst, Guðmundur Jónsson 12, Gunnar Einarsson 7/5 fráköst, Valur Orri Valsson 6, Davíð Páll Hermannsson 3, Þröstur Leó Jóhannsson 2.
Dominos-deild karla Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Íslenski boltinn Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Íslenski boltinn Brasilísk fótboltagoðsögn lést rétt fyrir HM Fótbolti Lærisveinar Heimis missa heimaleik á hlutlausan völl Fótbolti Fleiri fréttir Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Sjá meira