Varað við hvassviðri eða stormi í nótt Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 30. október 2014 23:46 vísir/anton brink
Vegagerðin varar við austan hvassviðri eða stormi við suðurströndina í nótt en vindhviður geta náð allt að 35-40 metrum á sekúndu. Þá má búast við mikilli úrkomu suðaustanlands. Veðurstofa Íslands spáir vaxandi austanátt á morgun, 18-25 metra á sekúndu og rigningu eða slyddu sunnan til, annars hægari en þurrt að kalla. Austan 23-28 metrar á sekúndu um tíma syðst í nótt og fyrramálið. Austan og norðaustan 18-23 og víða talsverð rigning eða slydda á morgun, en snjókoma til fjalla norðanlands. Búast má við mikilli úrkomu suðaustan- og austanlands. Dregur talsvert úr vindi og úrkomu sunnan til seinni partinn. Hlýnandi veður, hiti 0-8 stig á morgun, mildast syðst. Á Suðurlandi eru vegir að mestu greiðfærir, þó eru hálkublettir á örfáum vegum. Óveður er undir Eyjafjöllum og á Reynisfjalli. Vegir eru mikið auðir við Faxaflóa en hálka er á Holtavörðuheiði, í norðanverðri Bröttubrekku og flughált á Laxárdalsheiði. Hálka er á öllum helstu fjallvegum á Vestfjörðum og hálkublettir í Ísafjarðardjúpi og víða í Barðastrandasýslu. Þæfingsfærð er á leiðinni norður í Árneshrepp á Ströndum. Á Norðurlandi er víðast hvar hálka á vegum en snjóþekja á Dettifossvegi. Það er hálka eða hálkublettir víða á Austurlandi en greiðfært frá Eskifirði með suðausturströndinni að Öræfasveit en þar er nú óveður.Á laugardag Norðaustanhvassviðri eða stormur NV-til, en annars mun hægari. Rigning S- og A-lands, en annars slydda eða snjókoma. Hiti 0 til 6 stig, hlýjast syðst.Á sunnudag Norðaustanhvassviðri eða -stormur, en hægari SA-til. Víða slydda eða snjókoma, en bjart með köflum SV-til. Dregur heldur úr vindi síðdegis. Kólnandi veður.
Veður Mest lesið Fleiri bitnir af hundunum Innlent Báðu um að fá að grafa upp Jónas Hallgrímsson Innlent Deiliskipulag við Suðurlandsbraut, sundlaugar og fánar efst á dagskránni Innlent Sex úr sömu fjölskyldu skotnir til bana Erlent Enn ekkert spurst til Hákonar Innlent Vilja eyða óvissunni um bein Jónasar Innlent Flugeldaverksmiðja sprakk í loft upp Erlent Skaðabótasjóður Trumps í hættu Erlent Lítið breyst á fimmtán árum Innlent Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið Innlent Fleiri fréttir Vilja eyða óvissunni um bein Jónasar Deiliskipulag við Suðurlandsbraut, sundlaugar og fánar efst á dagskránni Báðu um að fá að grafa upp Jónas Hallgrímsson Lítið breyst á fimmtán árum Flugmenn lagt fram fleytilausn og staðan sögð erfið Höggið verði mikið fyrir ríkisstjórnina segi þjóðin nei Engar vísbendingar um kvikusöfnun en ríflega sjö hundruð skjálftar Fleiri bitnir af hundunum Hagsmunir barna ágætlega tryggðir í „bagalegu óyndisúrræði“ „Þá þurfum við að gera miklu betur“ Flokkur fólksins mælist utan þings Skortur á aðstoð, mótmæli og höggstaður á ríkisstjórn Enn ekkert spurst til Hákonar Stærsti skjálfti á svæðinu síðan 2022 Mótmælendur trufluðu þingfund Má heita Freyjó og Sifjar en ekki Mikhael „Það þarf kjark til að viðurkenna mistök“ Myndataka í lágloftunum vekur athygli Grunaður barnaníðingur í varðhaldi á grundvelli almannahagsmuna Syngjandi dúx Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Segir Ragnar Þór afhjúpa vanþekkingu á skólastarfi Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið „Andrúmsloftið er þungt og það eru allir slegnir“ Andlát á Hólmsheiði og skammtímasamningur á borðinu í flugdeilunni Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Á fimmta hundrað skjálftar mælst í hrinunni Segir að honum hafi gengið illa að sofna vegna hræðslu Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsbraut Sjá meira