Innlent

Líðan mannsins stöðug en slysið al­var­legt

Árni Sæberg skrifar
Slysið varð á Hellisheiði í gærkvöldi.
Slysið varð á Hellisheiði í gærkvöldi. Vísir/Vilhelm

Eftir því sem Lögreglan á Suðurlandi kemst næst er líðan mannsins sem lenti í umferðarslysi í Hellisheiði gær stöðug. Hann sé þó alvarlega slasaður.

Alvarlegt umferðarslys varð í upp úr klukkan hálf tíu í gærkvöldi og Hellisheiði var lokað í báðar áttir. 

Að sögn Þorsteins M. Kristinssonar, aðalvarðstjóra hjá Lögreglunni á Suðurlandi, er líðan þess sem lenti í slysinu stöðug en slysið þó alvarlegt. Fleiri umferðaróhöpp hafi orðið á heiðinni í gær, enda hafi færð verið slæm. Þau hafi öll verið minni háttar og engin slys hafi orðið á fólki. Eignatjón sé þó talsvert.

Slysið sé til rannsóknar en ljóst sé að hálka hafi í öllu falli verið orsakaþáttur í því.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×