Matur

Karamellu- og sykurpúðasmákökur - UPPSKRIFT

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar

Karamellu- og sykurpúðasmákökur

 
95 g mjúkt smjör

1 bolli púðursykur

1/4 bolli sykur

1 egg

2 tsk vanilludropar

2 bollar hveiti

2 tsk maizena

1 tsk matarsódi 

1/2 tsk salt

225 g hvítt súkkulaði, saxað

karamellusósa
sykurpúðar



Hitið ofninn í 170°C. Hrærið hveiti, maizena, matarsóda og salt saman í skál og setjið til hliðar. Blandið smjöri, sykri og púðursykri vel saman í annarri skál. Bætið eggi og vanilludropum saman við. Blandið þurrefnum varlega saman við. Bætið hvíta súkkulaðinu saman við með sleif. Búið til kúlur úr deiginu og setjið á bökunarpappírsklædda ofnplötu. Bakið í átta mínútur og takið plötuna síðan út úr ofninum. Setjið um teskeið af karamellusósu ofan á hverja köku og einn sykurpúða. Bakið í nokkrar mínútur til viðbótar, eða þangað til sykurpúðinn hefur brúnast. Leyfið kökunum að kólna og njótið.

Fengið hér.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.