Hollendingar töpuðu fyrir Mexíkó - Neymar með tvö í sigri Brassa Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. nóvember 2014 21:38 Neymar. Vísir/Getty
Hollenska landsliðið náði ekki að reka af sér slyðruorðið í Amsterdam í kvöld en liðið tapaði þá 2-3 í vináttulandsleik á móti Mexíkó. Tyrkir töpuðu á sama tíma 0-4 á heimavelli á móti Brasilíu. Þetta var því ekki gott kvöld fyrir liðin í okkar riðli. Lionel Messi tryggði Argentínu sigur á Króatíu í London.Carlos Vela, liðsfélagi Alfreðs Finnbogasonar hjá Real Sociedad, skoraði tvö mörk fyrir Mexíkó í kvöld í 3-2 sigri á Hollandi en hann kom Mexíkó bæði í 1-0 og 2-1 í þessum leik. Mörk Vela komu á 8. og 62. mínútu leiksins. Wesley Sneijder jafnaði metin í 1-1 á 49. mínútu en Javier Hernández, leikmaður Real Madrid, kom Mexíkó í 3-1 á 69. mínútu áður en Daley Blind, leikmaður Manchester United minnkaði muninn aftur í eitt mark sextán mínútum fyrir leikslok.Neymar skoraði tvö mörk og lagði upp eitt í 4-0 sigri Brasilíu á Tyrklandi í Istanbul. Eitt marka Brassana var sjálfsmark en fjórða markið skoraði Willian, leikmaður Chelsea. Willian skoraði markið sitt eftir undirbúning Neymar. Neymar, sem skoraði fyrsta markið á 20. mínútu og fjórða markið á 60. mínútu leiksins, er nú búinn að skora 42 mörk í aðeins 59 landsleikjum með brasilíska landsliðinu.Lionel Messi tryggði Argentínu 2-1 sigur á Króatíu með marki úr vítaspyrnu á 57. mínútu í vináttulandsleik þjóðanna á Boleyn Ground í London. Anas Sharbini kom Króatíu í 1-0 strax á 11. mínútu en Cristian Ansaldi jafnaði metin á 49. mínútu eftir undirbúning frá Sergio Agüero.
EM 2016 í Frakklandi Fótbolti Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Sjá meira