Fótbolti

Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna

Sindri Sverrisson skrifar
Liðsfélagar Mikaels Egils brostu öllu meira en hann eftir glæsimarkið. Mikael vildi sýna sínu gamla félagi virðingu með því að fagna ekki.
Liðsfélagar Mikaels Egils brostu öllu meira en hann eftir glæsimarkið. Mikael vildi sýna sínu gamla félagi virðingu með því að fagna ekki. Getty

Landsliðsmaðurinn Mikael Egill Ellertsson tryggði Genoa sigur með stórbrotnu marki í ítölsku A-deildinni í fótbolta í gær.

Markið skoraði Mikael á 25. mínútu með sannkölluðu þrumuskoti utan vítateigs, upp í nærhornið, eftir að hafa fengið boltann nokkrum metrum utan teigsins hægra megin. Markið má sjá hér að neðan.

Þetta glæsilega mark reyndist duga til 1-0 sigurs Genoa gegn Venezia, gamla liðinu hans Mikaels.

Mikael, sem er 24 ára, var áður leikmaður Venezia og af virðingu við sitt gamla félag neitaði hann að fagna markinu sínu eins og sjá má hér að ofan.

Mikael er á sinni annarri leiktíð með Genoa og var markið í gær hans fyrsta á þessari leiktíð. Hann skoraði einnig í síðustu landsleikjatörn, í 3-0 sigrinum gegn Búlgaríu á Laugardalsvelli.

Sigurinn í gær var aðeins annar sigur Genoa á leiktíðinni og er liðið með sjö stig, þremur stigum frá fallsæti, eftir átta umferðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×